Óvissa ríkir um rétt frelsissviptra

Umboðsmaður segir lagaumgjörð um vistun handtekinna í fangageymslum rýra.
Umboðsmaður segir lagaumgjörð um vistun handtekinna í fangageymslum rýra. Haraldur Jónasson / Hari

Lagaumgjörð um vistun handtekinna í fangageymslu lögreglu er rýr og ákveðin óvissa uppi um hvaða réttaröryggisreglur gilda um stöðu og vistun þeirra, eftir því á hvaða lagagrundvelli viðkomandi er vistaður þar.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umboðsmanns Alþingis í kjölfar OPCAT-eftirlitsheimsóknar í fangageymslu lögreglunnar á Hverfisgötu. Í eftirlitinu felst að heimsækja staði þar sem einstaklingar eru eða kunna að vera sviptir frelsi sínu og taka út aðbúnað þeirra og starfsemi á staðnum. 

Vegna þessa beinir umboðsmaður Alþingis því til dómsmálaráðherra og lögreglustjóra að huga að laga- og reglubreytingum hvað varðar vistun handtekinna í fangageymslum lögreglu.

Í máli sínu vekur umboðsmaður einnig athygli á því að þess séu dæmi að börn á sakhæfisaldri séu vistuð í fangageymslum lögreglu.

„Í samræmi við áskilnað í lögum, alþjóðasamningum og fjölþjóðlegum viðmiðum beinir umboðsmaður þeim tilmælum til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að handtekin börn séu vistuð á stað sem hæfi aldri þeirra og þroska,“ segir í ábendingum umboðsmanns.

Gæta þurfi þess að faglærðir sinni lögreglustörfum

Beinir umboðsmaður Alþingis því til dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra að huga að því hvaða breytingar þurfi að gera á núgildandi löggjöf og hafa frumkvæði að því að reglur um vistun handtekinna einstaklinga í fangageymslu verði settar í lög, þar sem mælt sé fyrir um aðbúnað, meðferð og réttarstöðu þeirra.

Þá er því beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra að endurskoða verklag til að tryggja að einungis lögreglumenn sem hafi til þess sérstaka menntun, þjálfun og valdbeitingarheimildir sinni störfum sem teljist til lögreglustarfa. 

Fleiri ábendingar og tilmæli til stjórnvalda getur að líta í skýrslunni og óskar umboðsmaður eftir að þau geri grein fyrir viðbrögðum sínum fyrir 1. apríl 2021, en skýrsla hans er gerð á grundvelli OPCAT-eftirlits hans eins og áður sagði, og er sú þriðja af þeim toga. Áður hefur verið fjallað um starfsemi þriggja lokaðra deilda á Kleppi og neyðarvistun Stuðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert