Ekki skuli nota faraldurinn til að skerða mannréttindi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. febrúar 2021 13:45 Guðlaugur Þór ávarpaði mannréttindaráðið með þessa stórfínu landslagsmynd í bakgrunni. Vísir/Utanríkisráðuneytið Staða mannréttindamála í Rússlandi er áhyggjuefni. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er hann ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í dag.
Ráðherra fór yfir víðan völl í ræðu sinni og kallaði meðal annars eftir því að Rússar, sem voru nýverið kjörnir í ráðið, myndu nýta sæti sitt í ráðinu til þess að taka upp nýja nálgun innanlands. Óskaði hann þess að mannréttindi allra Rússa yrðu virt, meðal annars tjáningarfrelsi og rétturinn til mótmæla. Mikill fjöldi mótmælenda hefur verið handtekinn í Rússlandi á árinu vegna handtöku og dóms yfir stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Hefur Guðlaugur Þór, líkt og aðrir utanríkisráðherrar á Vesturlöndum, kallað eftir því að hann verði leystur úr haldi. Varhugaverð þróun Ástandið í Hvíta-Rússlandi og Hong Kong bar einnig á góma. Guðlaugur Þór sagði yfirvöld þar hafa grafið undan lýðræðinu. Í Mjanmar hefði lýðræðinu svo einfaldlega verið kastað í ruslið. „Allt of víða sætir fólk ofsóknum vegna trúar sinnar, stjórnmálaskoðana eða kynhneigðar. Blaðamenn og fólk sem berst fyrir mannréttindum leggur líf sitt að veði í baráttunni gegn slíku óréttlæti. Það er sameiginleg skylda okkar að standa vörð um mannréttindi og frelsi allra,“ sagði Guðlaugur Þór. Íslandi þakkað fyrir Þá horfði ráðherra aftur til ársins 2019. Nánar tiltekið til sameiginlegrar yfirlýsingar um stöðu mannréttinda í Sádi-Arabíu þar sem minnst var á Loujain al-Hathloul, 31 árs gamla konu sem hefur barist fyrir réttindum kvenna í landinu og var handtekin árið 2018. „Við fögnum ákvörðun sádiarabískra stjórnvalda að svara kalli alþjóðasamfélagsins um að leysa hana úr haldi. Ég vona að þetta sé fyrirboði um raunverulegar umbætur og bætta stöðu kvenna og mannréttindabaráttufólks í Sádi-Arabíu,“ sagði Guðlaugur Þór. Lina al-Hathloul, systir Loujain, þakkaði fyrir stuðninginn á Twitter. brighter days for the women and human rights defenders of Saudi Arabia. Thank you Iceland for encouraging positive changes from the start. We are grateful for your support — Lina Alhathloul (@LinaAlhathloul) February 23, 2021 Skert frelsi í skugga Covid Kórónuveirufaraldurinn rataði einnig í ávarp utanríkisráðherra. „Það er enginn vafi um það að faraldur Covid-19 hefur reynst mikil áskorun fyrir ríkisstjórnir jafnt sem almenna borgara. Það er erfitt að finna rétt jafnvægi á milli takmarkana og frelsis.“ Hann sagði að ekki mætti nýta faraldurinn til þess að réttlæta langvarandi skorður á réttindi og frelsi. „Við þurfum að svara slíkum tilraunum og verðum að standa vörð um frið og öryggi, lög og reglu og mannréttindi, meðal annars réttindi kvenna og hinsegin fólks.“
Utanríkismál Sameinuðu þjóðirnar Mannréttindi Ísland í mannréttindaráði SÞ Rússland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Sjá meira