Aðalsteinn hættir hjá RÚV: „Ég er ekki að hætta í rannsóknarblaðamennsku“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. apríl 2021 12:46 Aðalsteinn hefur verið partur af ritstjórn fréttaskýringaþáttarins Kveiks undanfarin ár og átti meðal annar stóran þátt í umfjölluninni um Samherja-skjölin svokölluðu. Vísir/Vilhelm „Að vinna á RÚV og í umhverfinu þar, sem er gott að svo rosalega mörgu leyti, er samt orðið þannig að það hefur meiri áhrif á mitt daglega líf en ég kæri mig um,“ segir blaðamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson, sem tilkynnti á Facebook fyrir stundu að í dag væri síðasti vinnudagurinn hans hjá Ríkisútvarpinu.
Í Facebook-færslu sinni segist hann vera búin að velta þessu fyrir sér í marga mánuði; hann sé ekki að „fara í neinu fússi“ en að vandlega íhuguðu máli. Aðalsteinn segist engu að síður hafa komist að þeirri niðurstöðu „að RÚV sé ekki vinnustaður fyrir mig eins og stendur“. En er hann að hætta vegna starfsaðstæðna innan RÚV eða gagnrýni á RÚV? „Ég er ekki að hætta í rannsóknarblaðamennsku eða gagnrýnni blaðamennsku,“ svarar hann. Ef marka má athugasemdir við Facebook-færsluna virðist tilkynning hans hafa komið einhverjum samstarfsfélögum á óvart. „Ég er búin að vera, núna síðustu fjögur ár, á ritstjórn Kveiks og ég hef að sjálfsögðu verið opinn gagnvart þeim með það sem ég hef verið að hugsa,“ segir Aðalsteinn. „Þetta kemur þeim ekkert á óvart.“ Hann segist ekki vera að hætta vegna úrskurðar siðanefndar RÚV um Helga Seljan, samstarfsfélaga hans, en það sé vissulega þáttur í starfsumhverfinu að þurfa að takast á við eitthvað á borð við hana. En þegar hann talar um starfsumhverfið á RÚV getur hann átt við tvennt; starfsumhverfið á vinnustaðnum sjálfum og svo stöðuga gagnrýni einstaklinga út í bæ, sem margir finna ríkisfjölmiðlinum allt til foráttu. Hvort er hann að tala um? „Ég á ekkert von á því að einhverjir sem eru óánægðir með það sem ég er að gera í vinnunni hætti að kalla mig öllum illum nöfnum eða ráðast að mínum trúverðugleika,“ svarar Aðalsteinn dulur. „Ég þoli það.“ Ákvörðunin sé fyrst og fremst persónuleg. „Starfsumhverfið á RÚV er bara ekki fyrir mig. Kveikur er áfram frábær þáttur og mikilvægur og RÚV er einn mikilvægasti fjölmiðill á Íslandi,“ segir hann. Kjarninn segist hafa heimildir fyrir því að Aðalsteinn hafi ráðið sig til starfa á Stundinni en sjálfur vill hann lítið gefa upp um næstu skref. „Ég er ennþá starfsmaður RÚV, út daginn. Svo tek ég mér frí í næstu viku.“ Í dag er síðasti dagurinn minn á RÚV. Kveikur er frábær þáttur sem ég trúi að sé mikilvægur. Eftir að hafa hugsað mikið...Posted by Aðalsteinn Kjartansson on Friday, April 30, 2021 Uppfært 14:57: Stundin hefur greint frá því að Aðalsteinn hafi ráðið sig til starfa hjá Stundinni. Hann hefji störf í næstu viku.
Fjölmiðlar Vistaskipti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira