Álfheiður fær ekki að keppa í BBC Cardiff Singer of the World vegna veirunnar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 19. júní 2021 09:30 Álfheiður fékk að taka þátt í hluta undankeppninnar en þurfti frá að víkja. Aðsend/Stephanie Wake-Edwards Íslenska sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir fær ekki að halda áfram keppni í BBC Cardiff Singer of the World en hún hefur verið skikkuð í sóttkví eftir að einstaklingur í flugvélinni hennar á leið frá Íslandi til Bretlands greindist smitaður af veirunni.
Álfheiður hefur farið í þrjú Covid-próf síðan hún kom til Cardiff sem öll reyndust neikvæð, en fær samt ekki að halda áfram keppninni. Henni hefur þó þegar verið boðið að taka þátt árið 2023 og segist spennt fyrir því að geta stigið á svið og sungið vonandi fyrir fullan sal af áheyrendum. „Þegar ég áttaði mig á því að ég gæti ekki haldið keppninni áfram varð ég auðvitað mjög sorgmædd og fyrir miklu áfalli af því að þetta ferli hefur verið svo langt. Andlega álagið sem fylgir undirbúningnum fyrir eina stærstu söngkeppni heims er gífurlegt en þetta hefur að sjálfsögðu bara gert mig sterkari og reynslunni ríkari. En jú vissulega hefur mest allur tími minn undanfarið verið helgaður þessari keppni,“ segir Álfheiður í samtali við fréttastofu. Hefur lengi dreymt um að taka þátt í keppninni Álfheiður ólst upp í tónlistarfjölskyldu og hóf söngnám aðeins þriggja ára í Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík. Síðar hóf hún nám í Söngskóla Sigurðar Demetz og söng í fjölda kóra og hélt svo áfram tónlistarnáminu í Hanns Eisler tónlistarháskólanum í Berlín, þaðan sem hún lýkur mastersnámi í klassískum söng næsta júlí. Hún segir það lengi hafa verið draum hjá sér að taka þátt í keppninni í Cardiff. „Ég hef alltaf fylgst með þessari keppni, ég man eftir því að hafa horft á hana í sjónvarpinu á RÚV sem ung stelpa, var alveg heltekin og gat ekki hætt að horfa á þessa frábæru söngvara. Ég hef síðan þá alltaf látið mig dreyma um að taka þátt sjálf og í fyrra þegar ég sá auglýst eftir þátttakendum, þá ákvað ég að sækja um“ segir Álfheiður. Ársferli endaði í sóttkví á hótelherbergi Ferlið við að komast í keppnina var að sögn Álfheiðar langt og strangt. „Ég var ekkert mjög vongóð því ég áttaði mig á því að aðsóknin var mikil í þessa keppni. Þetta var mjög langt umsóknarferli og ég þurfti að senda þeim mörg myndbönd af mér að syngja. Það er gaman að segja frá því, að í síðasta umsóknarþrepinu sendi ég þeim upptöku frá aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem voru í beinni útsendingu á RÚV og eftir það fékk ég formlegt boð í keppnina ásamt 15 öðrum söngvurum hvaðanæva úr heiminum. Ég er ótrúlega stolt og þakklát fyrir þann mikla heiður að hafa fengið boð, sérstaklega af því að í ár var metfjöldi umsækjenda.“ Álfheiður segist vongóð um að geta tekið þátt i keppninni árið 2023.Aðsend/Ovors Þá hafi mikill tími farið í að velja lögin sem hún ákvað að syngja í keppninni. „Þá tók við alveg rosalegur undirbúningur og skriffinnska og umstang. Við þurftum að tilkynna með góðum fyrirvara hvaða verk við vildum flytja og sömuleiðis voru tekin við okkur mörg viðtöl og við jafnvel beðin um að mynda ferðalögin okkar til Cardiff svo BBC gæti sýnt frá þessari sérstöku Covid útgáfu keppninnar.“ „Það þýðir ekkert að velta sér of mikið upp úr þessu“ Keppnin er tvískipt. Annars vegar er keppt í ljóðasöng með píanóleikara og hins vegar í flutningi verka ásamt sinfóníuhljómsveit. Álfheiður hafði tekið þátt í fyrsta hluta keppninnar í ljóðasöngnum þegar fréttirnar bárust um að hún þyrfti að fara í sóttkví. Álfheiður lærir óperusöng við Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín.Aðsend/Ingo Hoehn „Það gekk ótrúlega vel og ég hef fengið frábær viðbrögð fyrir þann flutning. Nokkrum dögum síðar og aðeins klukkustund áður en átti að vera mætt á hljómsveitaræfingu fyrir fyrstu umferðina með hljómsveitinni, kom þessi tölvupóstur frá velskum heilbrigðisyfirvöldum um að ég yrði að fara í sóttkví þar sem smit hafði greinst hjá farþega í sama flugi,“ segir Álfheiður. „Ég þakklát fyrir að hafa ekki veikst og það þýðir ekki að velta sér of mikið upp úr þessum óvænta og sára viðsnúningi. Næst á dagskrá hjá mér er undirbúningur fyrir útskriftartónleika mína í meistaranáminu og ég hlakka mikið til að flytja verk á þeim tónleikum sem ekki fengu að hljóma í Cardiff,“ segir Álfheiður.
Bretland Íslendingar erlendis Mest lesið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Lífið Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Lífið Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Alltaf með jager skot í töskunni Tíska og hönnun Stóðu upp og klöppuðu í fimm mínútur fyrir Ljósbroti Bíó og sjónvarp Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Lífið Fleiri fréttir Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira