Fótbolti

Víta­mark á loka­mínútunni færði Roma Evrópu­deildar­sæti

Smári Jökull Jónsson skrifar
Paulo Dybala tryggði Roma Evrópudeildarsæti.
Paulo Dybala tryggði Roma Evrópudeildarsæti. Vísir/Getty

Paulo Dybala tryggði Roma sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð þegar hann skoraði úr víti á lokamínútunni gegn Spezia. Verona og Spezia þurfa að leika úrslitaleik um hvort liðið heldur sæti sínu í Serie A.

Það var töluverð spenna fyrir lokaumferðina í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Juventus, Atalanta og Roma voru að berjast um tvö sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð en tímabil Juventus hefur verið hálfgerð rússíbanareið enda hefur liðið lent í því að dómstólar hafa bæði tekið af og gefið liðinu stig.

Þá var einnig spenna í fallbaráttunni þar sem Verona var í þriðja neðsta sæti fyrir leiki kvöldsins með jafn mörg stig og Spezia og ljóst að annað liðanna myndi falla niður í Serie B.

Atalanta fór auðveldustu leiðina að Evrópudeildarsætinu með 5-2 sigri á Monza. Teun Koopmeiners kom Atalanta í 2-0 í fyrri hálfleik og hann fullkomnaði þrennuna í þeim síðari. Luis Muriel og Rasmus Hojlund skoruðu einnig en Hojlund hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United á síðustu dögum.

Juventus vann 1-0 sigur á Udienesi á útivelli. Federico Chiesa skoraði sigurmarkið á 68. mínútu og hélt vonum Juventus um sæti í Evrópudeildinni á lífi.

Þær vonir dóu hins vegar þegar flautað var til leiksloka í leik Roma og Spezia. Þar hafði Dimitrios Nikolaou komið Spezia yfir og um leið í góða stöðu í fallbaráttunni. Nicola Zwalewski jafnaði hins vegar metin fyrir Roma á 43. mínútu og á lokamínútu leiksins fékk Roma vítaspyrnu sem Paulo Dybala skoraði úr.

Rafael Leao skoraði tvö mörk fyrir AC Milan í kvöld.Vísir/Getty

Lokatölur 2-1 í Rómarborg og lærisveinar Jose Mourinho taka því þátt í Evrópusdeildinni á næsta tímabili en Juventus þarf að láta sér sæti í Sambandsdeildinni nægja.

AC Milan vann sigur á heimavelli gegn Hellas Verona. Oliver Girioud og tvenna frá Rafael Leao tryggðu sigur Milan sem lauk keppni í fjórða sæti og spilar í Meistaradeildinni á næsta tímabili ásamt Inter, Lazio og Roma.

Reglurnar á Ítalíu eru þannig að ef lið eru jöfn að stigum í sætum sem skipta miklu máli þá skuli leikinn úrslitaleikur. Þar sem Hellas Verona og Spezia eru bæði með 31 stig í 17. og 18. sæti deildarinnar munu þau leika úrslitaleik um sæti sitt í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×