Georgíumaðurinn bestur á Ítalíu

Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia.
Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia. AFP

Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia er leikmaður ársins í ítölsku A-deildinni í fótbolta. 

Kvaratskhelia er 22 ára kantmaður sem átti frábært tímabil með Napolí og var meginstoð í því að liðið vann sinn fyrsta meistaratitil í 33 ár. Georgíumaðurinn skoraði 12 mörk og lagði upp önnur tíu í 33 leikjum. 

Luciano Spalletti, þjálfari Kvaratskhelia og Napolí, var valinn þjálfari ársins. Besti ungi leikmaðurinn var svo Nicolo Fagioli, leikmaður Juventus. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert