Ponzi-leikur eða fjárfesting til framtíðar?

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson, hagfræðingur og sagnfræðingur, skrifar um dóm Hæstaréttar í máli Gráa hersins gegn Tryggingastofnun ríkissins og íslenska ríkinu vegna lækkunar á ellilífeyri og heimilisuppbót.

Auglýsing

Þann 2. nóv­em­ber sl. kvað Hæsti­réttur upp dóm í málum Gráa hers­ins gegn Trygg­inga­stofnun rík­is­ins og íslenska rík­inu vegna lækk­unar á elli­líf­eyri og heim­il­is­upp­bót vegna greiðslna sem þau nutu úr skyldu­bundnum atvinnu­tengdum líf­eyr­is­sjóðum á tíma­bil­inu frá 1. mars 2017 til 1. apríl 2020. Skemmst er frá því að segja að Grái her­inn tap­aði mál­inu.

Dómur Hæsta­réttar er tví­þætt­ur: Í fyrsta lagi fjallar dóm­ur­inn um tekju­teng­ingar á rétt­indi í líf­eyr­is­sjóð­um, og í öðru lagi um lækkun elli­líf­eyris vegna greiðslna úr skyldu­bundnum líf­eyr­is­sjóð­um. Dómur Hæsta­réttar er sam­hljóða dómi hér­aðs­dóms (sjá hér) og kemur ekki bein­línis á óvart. Hins vegar hefði dóm­ur­inn mátt vera skýr­ari. Meg­in­rök dóms­ins fyrir heim­ild rík­is­ins til að tekju­tengja almanna­trygg­ingar eru þau að slíkt hafi tíðkast frá árinu 1970. Það eru í sjálfu sér engin rök að eitt­hvað hafi tíðkast lengi, og segir ekk­ert til um lög­mæti slíkra aðgerða. Rök Hæsta­réttar fyrir lækkun elli­líf­eyris frá Trygg­inga­stofnun vegna greiðslna úr líf­eyr­is­sjóðum eru sams­kon­ar; dóm­ur­inn segir rétt­inn til elli­líf­eyris hvorki byggj­ast á hefðum eða skyldum sam­fé­lags­ins við fyrri kyn­slóð­ir, heldur á for­sendum fjár­laga hvers árs fyrir sig.

Með öðrum orðum er 90 ára saga eft­ir­launa frá Trygg­inga­stofnun þurrkuð út á einu bretti. Eng­inn fyr­ir­sjá­an­leiki, engin trygg­ing, ekk­ert nema henti­stefna.

Auglýsing

Adam Smith varar við þessu í meg­in­reglum sínum um skatta (Auð­æfi þjóð­anna, 1776) og seg­ir: Skattar eiga að vera þekkt og ræki­lega skil­greind stærð og mega ekki ráð­ast af geð­þótta, „ljósir og auð­skildir skatt­greið­endum og öllum öðr­um.” Að öðrum kosti er hætta á að stjórn­sýslan kúgi fé af skatt­greið­and­an­um.

Hvorki Hæsti­réttur né hér­aðs­dómur skýra til hlítar sam­spil þjóð­hags­reikn­inga, launa og líf­eyr­is­kerf­is­ins, sem stendur utan við þjóð­hags­reikn­inga, og hins vegar launa og eft­ir­launa frá Trygg­inga­stofnun og líf­eyr­is­kerf­inu. Á Íslandi er not­ast við þjóð­hags­reikn­inga­kerfi Sam­ein­uðu þjóð­anna (SNA 98) og evr­ópska útgáfu þess (ESA 2010). Sam­kvæmt þeirri skil­grein­ingu skipt­ist hið opin­bera í þrjá sjálf­stæða reikn­inga:

  • Rík­is­sjóð­ur, aflar tekna með sköttum (þing­gjöld og virð­is­auka­skatt­ur).
  • Sveit­ar­fé­lög, afla tekna með sköttum (út­svar og fast­eigna­gjöld).
  • Almanna­trygg­ing­ar, afla tekna með iðgjöld­um.

Hér er það síð­ast­nefndi lið­ur­inn sem skiptir meg­in­máli, almanna­trygg­ing­ar. Allt frá stofnun þeirra árið 1936 og fram til árs­ins 1972 skipt­ist fjár­mögnun þeirra milli launa­manna, rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga í ákveðnum hlut­föllum (sjá nánar hér), kerfi sem er t.d. notað í Nor­egi (sjá nánar hér). Almanna­trygg­ingar á Íslandi voru ljósárum á eftir öðrum Norð­ur­lönd­um. Einkum voru tekjur elli- og örorku­þega langt fyrir neðan öll við­mið vegna afstöðu fyrri rík­is­stjórnar til við­bót­ar­líf­eyr­is­kerf­is­ins á hinum Norð­ur­lönd­un­um, sem leiddi til stofn­unar hins sér­ís­lenska líf­eyr­is­kerfis (sjá nánar hér).

Vinstri stjórnin 1971 ger­breytti fjár­mögnun almanna­trygg­inga. Tekj­ur, sem ein­ungis hrukku fyrir brýn­ustu lífs­nauð­synj­um, voru ekki skatt­lagð­ar. Skatta­eft­ir­lit var hert, þannig að rétt­lát skatta­fram­kvæmd var betur tryggð, og ekki síst var iðgjald laun­þega til almanna­trygg­inga fært inn í skatt­kerfið til að jafna skatt­byrð­ina, en tekju­skattur og aðrir skattar hækk­aðir í stað­inn. Þannig greiddu þeir meira sem höfðu hærri tekj­ur. Tekju­trygg­ing aldr­aðra og öryrkja hækk­aði mik­ið, fór úr 4.900 gömlum krónum á mán­uði í 10.000 gkr. fyrir ein­stak­ling og 18.000 gamlar krónur fyrir hjón. Til sam­an­burðar voru lægstu mán­aða­laun sam­kvæmt þá nýgerðum Dags­brún­ar­samn­ingi 17.600 gkr. og nam tekju­trygg­ingin um 57% af dag­vinnu­kaupi. Á sama tíma námu lægstu útborguð mán­að­ar­laun hjá rík­is­starfs­mönnum um 15.000 gkr. og var tekju­trygg­ingin 63,5% af þeim tekj­um.

Sam­hliða voru sjúkra­sam­lögin gerð upp nákvæm­lega miðað við 1. jan­úar 1972 en laun­þegar báru beint stærsta hluta kostn­að­ar­ins af þeim (sjá nánar hér). Sveit­ar­sjóðir lögðu fram sér­stakt fram­lag vegna þeirra, 9,77% af gjöldum árs­ins, en rík­is­sjóður greiddi almanna­trygg­ingum tekju­skerð­ing­una. Öll álögð en óinn­heimt iðgjöld voru færð til tekna og eign­ar, en til­fall­in, ógreidd gjöld á þeim tíma færð til gjalda og til skuld­ar. Útistand­andi iðgjöld voru síðan end­ur­metin með hlið­sjón af senni­legum van­höldum í inn­heimtu, ekki minna en 15%. Jákvæður höf­uð­stóll var reikn­aður og færður hlut­að­eig­andi sveit­ar­fé­lögum og rík­is­sjóði til eign­ar, þannig að sveit­ar­fé­lög fengu 42.5%, en rík­is­sjóður 57.5%. Nei­kvæður höf­uð­stóll var reikn­aður í sömu hlut­föll­um.

Auglýsing

Með öðrum orðum er hluti iðgjalds til almanna­trygg­inga inni­falið í skatt­greiðsl­um, sem rík­is­sjóður ábyrgð­ist að greiða almanna­trygg­ing­um. Skattar eru margs­konar og hafa hækkað mikið síðan 1972. Það sama á við um inn­heimtu skatta og gjalda. Hún er margs­kon­ar, sbr. Adam Smith í áður­nefndu riti: „Loks eiga skattar að vera hag­kvæmir – ekki of dýrir í inn­heimtu og ekki svo háir að þeir standi skatt­greið­anda fyrir þrifum eða dragi úr honum kjark.“ Skipu­lag inn­heimtu almanna­trygg­inga hefur ekki breyst, og skatt­borg­urum hefur ekki verið boðið að færa iðgjaldið aftur úr skött­unum og greiða það sér. Rík­is­sjóður hefur hins vegar ekki greitt Trygg­inga­stofnun iðgjaldið og skatta­lækk­unin sem rík­is­stjórnin lof­aði þeim tekju­lágu er tekin aftur með tví­sköttun eft­ir­launa. Stjórn­völd hafa önnur tól. Þau geta t.d. hækkað trygg­inga­gjaldið eða breytt skatt­kerf­inu og til bráða­birgða má leysa málið með fjár­auka­lögum, eins og á öðrum Norð­ur­löndum. Það tíðkast ekki hjá sið­mennt­uðum þjóðum að stjórn­völd lækki eft­ir­laun hins almenna borg­ara en hækki greiðslur til sjálfs sín um tugi pró­senta. Hér læð­ast stjórn­völd aftan að skatt­greið­endum og kúga þá til hlýðni.

Í dómnum segir Hæsti­réttur að réttur til elli­líf­eyris skap­ist ekki á grund­velli tekna, heldur búsetu. Hér er vert er að hafa í huga að almanna­trygg­ingar birt­ast ekki full­mót­aðar eins og Palla­s-A­þena forðum þegar hún stökk úr höfði Seifs. Upp­haf búsetu­á­kvæð­is­ins liggur mun lengra aftur í hinu forna bænda­sam­fé­lagi (sbr. Kristni­réttur hinn forni frá 1023, tíund­ar­sta­túta Giss­urar frá 1097 og hrepp­stjóra­in­trúxið 1809). Jónas kvað: Bóndi er bústólpi, en allir skattar mið­uð­ust við bónd­ann. Hann var höfuð fjöl­skyld­unn­ar. Það sama átti við um skatt­skil. Bónd­inn sá um þau. Hús­freyjan (eig­in­kon­an) varð ekki sjálf­stæður skatt­borg­ari fyrr en 1980 og þá fyrst og fremst vegna margra ára bar­áttu sós­í­alista (Katrín Thorodd­sen, barna­lækn­ir; Adda Bára Sig­fús­dótt­ir, veð­ur­fræð­ingur og ekki síst Svava Jak­obs­dótt­ir, rit­höf­und­ur). Þess má einnig geta að bónd­inn sá um skatt­skil hjúa sinna fram á fimmta ára­tug 20. ald­ar, enda hvíldi fram­færslu­skyldan á herðum hans. Þetta fyr­ir­komu­lag hafði hvorki áhrif á rétt­ar­stöðu hús­freyju né hjúa á neinn hátt.

Það blasir þó við að maður sem greiðir í líf­eyr­is­sjóð, hann greiðir einnig til almanna­trygg­inga. Ann­ars nýtur hann ekki greiðslna frá líf­eyr­is­sjóði og greiðslur frá almann­trygg­ingum eru ekki tví­skatt­að­ar. Eitt leiðir af öðru. Sá sem ein­göngu hefur fjár­magnstekjur greiðir hvorki trygg­inga­gjald né í líf­eyr­is­sjóð en nýtur fullra eft­ir­launa frá Trygg­inga­stofn­un, hafi hann búið hér­lendis í 40 ár.

Auglýsing

Til að átta sig betur á þessu er nauð­syn­legt að skoða launa­hug­takið sjálft, sem er margrætt, og teng­ingu þess við skatta, skyldur og eft­ir­laun:

  • Taxta­laun, laun sem ákveðin eru í við­ræðum milli verka­lýðs­fé­laga og atvinnu­rek­enda.
  • Stað­greiðslu­skyld laun, taxta­laun að frá­dregnu trygg­ing­ar­gjaldi og líf­eyr­is­greiðsl­um.
  • Útborguð laun, stað­greiðslu­skyld laun að frá­dregnum skatti en við­bættum per­sónu­frá­drætti.
  • Heild­ar­laun, taxta­laun að við­bættu trygg­ing­ar­gjaldi og öllum greiðslum í líf­eyr­is­sjóð, einnig greiðslum atvinnu­rek­anda.

Miðað við núver­andi kjara­samn­inga Efl­ingar við Reykja­vík­ur­borg hefur stúlka með 5 ára starfs­reynslu 420 þús­und krónur í taxta­laun á mán­uði; stað­greiðslu­skyld laun hennar eru 386.400 kr. ef hún velur að setja 4% í sér­eign­ar­sjóð, ann­ars mið­ast stað­greiðslan við 403.200 kr.; útborguð laun hennar eru 317.759 kr. ef hún greiðir í sér­eigna­sjóð, ann­ars fær hún útborgað 328.183 kr. um hver mán­að­ar­mót. Heild­ar­laun hennar eru mun hærri, eða 503.370 kr., ef hún velur sér­eign­ar­sjóð, en þá fær hún 2% ofan á laun sín, ann­ars nema heild­ar­mán­að­ar­laun hennar 494.970 kr.

Hæsti­réttur fellst ekki heldur á rök Gráa hers­ins um að líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur komi til við­bótar rétt­indum innan almanna­trygg­inga­kerf­is­ins og njóti verndar 1. mgr. 72. gr. stjórn­ar­skrár­inn­ar.

Þegar dóm­ur­inn er settur í sam­hengi við kjara­samn­ing­inn hér á undan fær umrædd „efl­ing­ar­stúlka“ 206.806 kr. á mán­uði úr sér­eign­ar­sjóði. Þær greiðslur hafa hins vegar engin áhrif á greiðslur frá Trygg­inga­stofnun (TR). Sam­kvæmt kjara­samn­ingi má hún búast við að heild­ar­eft­ir­laun hennar verði 703.445 kr. á mán­uði, hafi verið greitt í sér­eign­ar­sjóð, ann­ars nema eft­ir­launin 496.639 kr. Mun­ur­inn er 41%. Greiðslur í sér­eign­ar­sjóð eru, ólíkt greiðslum frá sam­eign, ekki tví­skatt­aðar og hafa engin áhrif á eft­ir­laun frá TR. Þessi skatta­lega mis­munun tekna frá sömu upp­sprettu var ein af dóm­kröfum Gráa hers­ins fyrir hér­aðs­dómi, en hann, rétt eins og Hæsti­réttur nú, sigldi fram hjá henni. Hæsti­réttur bendir hins vegar á, eins og Adam Smith forð­um, að: „skattar geti síðan verið stig­hækk­andi eftir því sem tekjur manna eru hærri“. Hæsti­réttur hnýtir samt aftan við þetta og seg­ir: „Af sama meiði er regla sem bygg­ist á þeirri for­sendu að þeir sem meiri tekjur hafi sér til fram­færslu fái minni aðstoð frá rík­inu en þeir sem litlar eða engar tekjur hafa.“ Hér segir Hæsti­réttur eft­ir­laun frá Trygg­inga­stofnun séu af sama meiði og fátækt­ar­tí­undin var forð­um: að Guð og yfir­völd mis­kunni sig yfir fátæk­linga með greiðslu eft­ir­launa. Þetta við­horf yfir­valda til eft­ir­launa end­ur­speglar 19. aldar kreddu, sem Svava Jak­obs­dóttir og fleiri börð­ust við á sínum tíma. Eft­ir­laun frá TR eru rétt­indi, sem menn njóta vegna greiðslu skatta og skyldna til sam­fé­lags­ins í 40 ár. Ekki ölmusa. Í þessu liggur mun­ur­inn á rétt­ar­rík­inu, hina lýð­ræð­is­lega vel­ferð­ar­þjóð­fé­lagi sem tíðkast á Vest­ur­lönd­um, og gamla léns­kerf­inu, sem byggð­ist á nánu sam­starfi kirkju og rík­is.

Auglýsing

Það er þó fleira sem vekur eft­ir­tekt. Sam­kvæmt líf­eyr­is­fyr­ir­komu­lagi „efl­ing­ar­stúlkunn­ar“ fær hún 514.485 kr. útborgað í eft­ir­laun, hafi hún lagt fyrir í sér­eign­ar­sjóð, ann­ars fær hún 386.161 kr. Þetta er svo­lítið sov­éskt kerfi, þar sem nomenkla­t­úran er í Ponzi-­leik við „efl­ing­ar­stúlk­una“. Lofar henni 18 til 62% hærri eft­ir­launum en hún fær útborgað fyrir að vinna fullan dag hjá Reykja­vík­ur­borg til að hún sætti sig við hlut­skipti sitt, svipað því þegar kirkjan lof­aði fátæk­ling­unum öruggri vist í himna­ríki. Nomenkla­t­úran veit að litlar líkur eru á að þessi ávöxtun stand­ist. Fjár­mála­ráð­herra gerir engan grein­ar­mun á rík­is­sjóði og líf­eyr­is­sjóði. Allt sami sjóð­ur­inn og hætta á að standi þessi dómur óhagg­aður muni skatt­heimta aukast enn frekar (sjá nánar hér). Þess vegna tekur nomenkla­t­úran út sinn sér­eign­ar­sparnað og fjár­festir í hús­næði, sem hún svo leigir „efl­ing­ar­stúlkunn­i“. Vilji sú síð­ar­nefnda hafa ráð á húsa­leig­unni þarf hún að vinna lengri vinnu­dag og nemur þá jað­ar­skatt­ur­inn 60 til 74 aurum af hverri krónu, sem á sinn þátt í að taka límið úr sam­fé­lag­inu, eins og rit­stjór­inn orð­aði það. Hér­lendis nema skatt­svikin t.d. um 20% af launum en um 3,5% á Norð­ur­löndum (sjá nánar hér).

Höf­undur er hag­fræð­ingur og sagn­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar