Bílar

Eini sinnar tegundar á landinu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Polestar 1 bíllinn er svo sannarlega sjaldgæf sjón.
Polestar 1 bíllinn er svo sannarlega sjaldgæf sjón. Vísir/James

Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í níunda þætti er Polestar 1 tekinn fyrir.

James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Polestar 1 bíllinn sem hann prófar í þættinum er sá eini sem til er á landinu. Einungis fimmtán hundruð eintök voru framleidd á heimsvísu. Sumir sem hafa keypt bílinn hafa ekki einu sinni prófað að keyra hann vegna fágætis hans.

Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan, en sjá má fyrri þætti hér.

Klippa: Tork gaur - Polestar 1

Polestar er dótturfyrirtæki Volvo og fengu hönnuðir Polestar mikla aðstoð frá Volvo-mönnum við gerð bílsins. James segir að þó innréttingin sé mjög „Volvo-leg“ þá sé hún algjörlega úr efstu hillu. 

James segir Polestar 1 bílinn vera svokallaðan „halo-bíl“, það er að hann er allt sem fólk dreymir um ef það ætti nægilega mikinn pening. Svo þegar fólk mætir í bílaumboðið og sér annan svipaðan bíl, Polestar 2, sem kostar einn þriðja af verði halo-bílsins, þá er það líklegra til að kaupa hann. 

Polestar 1 er tengiltvinnbíll með áttatíu kílómetra drægni á rafmagninu einu. Vélin er 620 hestöfl en James segist aldrei nokkurn tímann hafa keyrt jafn kraftmikinn bíl. Hann líkir keyrsluupplifuninni við að vera barn í sælgætisverslun. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×