Landsliðsmaðurinn í bikarúrslit

Haukur Þrastarson skoraði eitt mark.
Haukur Þrastarson skoraði eitt mark. Ljósmynd/HSÍ

Stórliðið Kielce tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum pólska bikarsins í handbolta með sigri á Wybrzeze Gdansk, 33:30.

Haukur Þrastarson leikur með Kielce og Selfyssingurinn skoraði eitt mark í leiknum.

Kielce mætir Wisla Plock í úrslitum á morgun en þau voru með mikla yfirburði í pólsku deildinni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert