Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Jóhann K. Jóhannsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 4. mars 2021 14:05 Börn að leik og stóra blokkin í bakgrunni. Vísir/Vilhelm Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna.
Skjálftahrinan á Suðurnesjum hófst fyrir rúmri viku með stórum skjálftum yfir fimm að stærð miðvikudaginn 24. febrúar. Í gær bárust fundust svo sterkar vísbendingar um að eldgos sé að hefjast á Reykjanesi og er töluverður viðbúnaður af þeim sökum. Fjölmargir Pólverjar búa í Grindavík, starfa margir hverjir í fiskvinnslu, og stendur ekki á sama varðandi þá náttúruvá sem fyrir höndum er. „Við erum svolítið að fara yfir þetta aftur, sem við gerðum í fyrra þegar landrisið var. Bjóða þeim að koma og vera með túlk. Svo þau geti spurt fagfólk. Nú var ég í sambandi við Veðurstofuna og sérfræðinga þar. Þeir ætla að reyna að koma til móts við okkur að senda hingað einhverja sem geta verið til svars og útskýringa. Það brenna örugglega margar spurningar á þeim sem þau vilja fá svör við.“ Kristín María merkir meiri hræðslu meðal útlendinganna en Íslendinga. „Já, ég merki það alveg. Ég átti gott samtal við okkar tengilið við pólska samfélagið áðan. Hún var að segja mér að það búa pólskir íbúar í stóru blokkinni sem tekur á móti þér þegar þú kemur inn í bæinn og þau vilja helst ekkert vera þar. Eru bara flutt út.“ Hún segist vita til þess að fólkið sé að reyna að koma sér fyrir annars staðar og líði ekki vel. „Hluti af því er að koma að fræðslunni, að fræða en ekki hræða. Það hefur margoft komið fram að hraungos hér mun ekki ógna neinum byggðarlögum eða fólki.“ Grindavík og fjallið Þorbjörn í bakgrunni.Vísir/Egill Hún segist vera farin að venjast skjálftunum. „Sérstaklega þegar þessir litlu koma. Þegar maður hefur upplifað þessa stóru, eins og á miðvikudaginn í síðustu viku, þá eru hinir einhvern veginn pínkulitlir í samanburðinum. Svo er maður kannski farinn að finna eitthvað sem kannski er ekki því maður er kominn með þessa jarðskjálftariðu.“
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Sjá meira