Telur ráðherra hafa misskilið svar Landspítalans um greiningu sýna Kjartan Kjartansson skrifar 4. mars 2021 21:39 Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir meinafræðideildar Landspítala. Stöð 2 Yfirmaður meinafræðideildar Landspítalans segir að heilbrigðisráðherra hafi misskilið svar spítalans um hvort að hann gæti tekið að sér greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimun. Verið sé að skoða hvað þurfi til að deildin geti tekið greininguna að sér sem færist að öðrum kosti úr landi.
Til stendur að greining sýna úr skimuninni færist til Danmerkur eftir að ríkið tók við henni af Krabbameinsfélaginu um áramótin. Læknaráð Landspítalans, yfirlæknar og fleiri heilbrigðisstarfsmenn hafa lýst áhyggjum af þeirri ákvörðun og kallað eftir því að greiningin fari fram hér á landi áfram. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, sagði á Alþingi í gær að Landspítalinn hefði vísað verkefninu frá sér þegar ráðuneytið leitaði til hans síðasta sumar. Það sagði Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir meinafræðideildar Landspítalans, misskilning í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Ráðuneytið hefði sent fyrirspurn í fyrra um hvað það kostaði að greina frumusýni á meinafræðideildinni og hvort að sýnafjöldi dygði til þess að halda uppi hæfni starfsfólks til framtíðar. Jón Gunnlaugur sagðist ekki hafa skilið bréfið sem ósk um að deildin tæki verkefnið að sér. Svar spítalans þá hafi verið að meinafræðideildin hefði hvorki sérhæfðan búnað né mannskap til þess að greina sýnin. Á þeim tíma sem bréfið barst segir Jón Gunnlaugur að stjórnendur spítalans hefðu ekki vitað betur en að Krabbameinsfélagið ætlaði að sinna greiningunni áfram eða að til stæði að færa hana þaðan. „Við settum í þetta bréf að við teldum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þessari rannsóknarstarfsemi,“ sagði Jón Gunnlaugur. Þyrftu mannskap, búnað og húsnæði við hæfi Landspítalinn kannar nú möguleikann á að taka við greiningunni eftir að ráðuneytið sendi nýtt erindi þess efnis. Jón Gunnlaugur segir að til þess að svo yrði þyrfti að ráða sérhæft starfsfólk sem hefur menntun og reynslu til að greina sýni af þessu tagi. Þá þyrfti tækjabúnað, hvort sem hann yrði leigður eða keyptur. Væntanlega væri slíkur búnaður enn til hjá Krabbameinsfélaginu. Velti Jón Gunnlaugur upp möguleikanum á að fá tæki, starfsfólk og jafnvel húsnæðið sem Krabbameinsfélagið notað við greiningu sýna. „Ég er ekki að fullyrða að við getum tekið þetta að okkur. Við myndum reyna að gera það og svara því til ráðuneytisins,“ segir hann. Tók hann undir áhyggjur yfirlækna af því að greiningin færi úr landi. Sagðist hann telja það synd að verkefnið færi úr landi ef sérþekking væri til staðar á Íslandi. Hann dragi þó ekki í efa að dönsk rannsóknarstofa gæti sinnt greiningunni vel og rök gætu verið fyrir því að flytja greininguna úr landi. Hann teldi þó ástæður sem hafa verið gefnar upp fyrir því að flytja greininguna úr landi ekki standast, þar á meðal að öryggi sjúklinga væri ógnað ef greiningin færi fram hér á landi. „Mér finnst það vera dálítið vafasamt,“ sagði hann. Ákvörðunin um hvort greiningin verði áfram á Íslandi eða flytjist úr landi sé á hendi ráðuneytisins þegar það er komið með allar upplýsingar í hendur frá Landspítalanum. Rætt hafi verið um að spítalinn svari erindi ráðuneytisins fyrir 15. mars en óvíst væri hvort að það næðist fyrir þann tíma.
Skimun fyrir krabbameini Landspítalinn Tengdar fréttir Krefjast svara Landspítala í kjölfar ummæla yfirlæknis Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir því að Landspítalinn staðfesti vilja sinn til þess að annast greiningu leghálssýna vegna krabbameinsskimunar. Fyrirhugað er að skimunin verði flutt til Danmerkur. 2. mars 2021 17:44 Læknafélag Íslands segir mikilvæg störf færð úr landi Stjórn Læknafélags Íslands harmar að ekki hafi gefist tími til að semja við innlenda aðila um rannsóknarhluta leitarstarfsins áður en ákvörðun var tekin um að leghálsskimunarsýni yrðu flutt frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 27. febrúar 2021 14:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira
Krefjast svara Landspítala í kjölfar ummæla yfirlæknis Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir því að Landspítalinn staðfesti vilja sinn til þess að annast greiningu leghálssýna vegna krabbameinsskimunar. Fyrirhugað er að skimunin verði flutt til Danmerkur. 2. mars 2021 17:44
Læknafélag Íslands segir mikilvæg störf færð úr landi Stjórn Læknafélags Íslands harmar að ekki hafi gefist tími til að semja við innlenda aðila um rannsóknarhluta leitarstarfsins áður en ákvörðun var tekin um að leghálsskimunarsýni yrðu flutt frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 27. febrúar 2021 14:09