Ævilöng svipting ökuréttinda felld niður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. nóvember 2021 09:03 Maðurinn var handtekinn í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur fellt niður ævilanga sviptingu ökuréttinda manns sem sakfelldur var fyrir að hafa verið óhæfur til að stjórna ökutæki sínu örugglega vegna áhrifa fíkniefna.
Forsögu málsins má rekja til þess að umræddur maður var stöðvaður við akstur í Vestmannaeyjum í ágúst árið 2018. Var hann án tilskilinna ökuréttinda auk þess sem að lögregla taldi hann óhæfan til að stjórna bílnum örugglega vegna áhrifa fíkniefna. Tetrahýdrókannabínólsýra mældist í þvagsýni sem maðurinn lét í té en ekki reyndist mælanlegt magn af sama efni í blóði mannsins. Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands árið 2019 fyrir brot sitt og honum gert að sæta þrjátíu daga fangelsi auk ævilangrar sviptingar ökuréttinda. Ný umferðarlög samþykkt skömmu eftir dóminn Skömmu eftir að dómur í máli hans féll samþykkti Alþingi frumvarp til nýrra umferðarlaga þar sem meðal annars var gerð sú breyting á að fellt var á brott það ákvæði þeirra að mæling á ávana-og fíkniefnum „í þvagi“ ökumanns gæti, ein og sér, talist viðhlítandi grundvöllur til stofnunar refsiábyrgðar. Samkvæmt heimild í lögum óskaði maðurinn eftir því að þau viðurlög sem honum voru gerð með dóminum yrðu felld niður, þar sem refsinæmi þess verknaðar sem hann var sakfelldur fyrir hafi fallið niður, það er að samkvæmt nýju lögunum gæti mæling á ávana- og fíkniefnum í þvagi ökumans gæti ekki ein og sér verið grundvöllur til stofnunar refsiábyrgðar. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók manninn.Vísir/Vilhelm Vísaði maðurinn til þess að í játningu hans í dómsmálinu fyrir héraðsdómi hafi ekki falist að hann hafi gengist við því að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn, heldur að hún hafi aðeins tekið til þess að þar sem fíkniefni hafi mælst í þvagsýni frá honum hafi hann brotið gegn þágildandi umferðarlögum. Í dómi Landsréttar segir að það liggi fyrir að sú háttsemi sem maðurinn var sakfelldur fyrir sé nú refsilaus. Taldi Landsréttur því rétt að fella niður refsingu mannnsins. Var ævilöng ökuréttarsvipting hans því felld úr gildi. Þá var þrjátíu daga fangelsisrefsing mannsins einnig felld niður. Þó þarf hann að greiða tuttugu þúsund króna sekt fyrir að hafa ekið án tilskilinna ökuréttinda.
Vestmannaeyjar Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Sjá meira