Bæjarfulltrúar á Akureyri ætla að lækka launin sín Heimir Már Pétursson skrifar 22. september 2020 19:21 Bæjarfulltrúar flokkanna sex í bæjarstjórn Akureyrar skrifuðu undir samstarfssáttmála í dag. Mynd/Ragnar Hólm Ragnarsson
Flokkar og framboð í bæjarstjórn Akureyrar stefna að því að ná fram hagræðingu í rekstri bæjarins eftir að þeir ákváðu í dag að vinna allir saman og leggja af meiri- og minnihluta. Nýgerðir kjarasamningar og kórónufaraldurinn hafa aukið útgjöld á sama tíma og tekjur hafa minnkað. Framsóknarflokkur, Samfylking og L-listi mynduðu saman meirihluta á Akureyri eftir bæjarstjórnarkosningar 2018 en Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Miðflokkur voru í minnihluta. Erfið fjárhagsstaða vegna kórónuveirunnar og nýgerðra kjarasamninga ýtti flokkunum til skrifa undir samstarfssáttmála þeirra allra í dag. Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins segir fráfarandi meirihluta ekki hafa gefist upp á verkefninu. Gunnar Gíslason oddviti Sjálfstæðisflokks og Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar og fulltrúi Framsóknarflokksins.Mynd/Ragnar Hólm Ragnarsson „Nei það er langur vegur frá því að við séum að gefast upp á verkefninu. Við teljum hins vegar þegar við stöndum frami fyrir svona stórum verkefnum eins og núna sé rétt að kalla alla að borðinu. Að íbúar bæjarins eigi alla sína fulltrúa í þeirri ákvörðunartöku sem liggur fyrir að fara í,“ segir Halla Björk. Gunnar Gíslason oddviti Sjálfstæðismanna segir ljóst að rekstrarstaða bæjarins sé mjög slæm við þær aðstæður sem nú ríki. „Við erum bara öll sammála um að það þurfi að fara í aðgerðir sem komi til með að reyna á. Það mun taka á að koma þessum aðgerðum fram og framkvæma þær,“ segir Gunnar. Bærinn muni sinna lögbundnum verkefnum en horfa til allra annarra þátta til sparnaðar og hagræðingar. Meðal annars til að ná fram lækkun launakostnaðar. „Við getum ekki lækkað laun einhliða hjá starfsfólki. En við getum lækkað laun hjá sjálfum okkur og þar ætlum við að byrja. Síðan erum við að skoða alla hagræðingarmöguleika hvað varðar að nýta mögulega starfsmannaveltu. Draga úr þeim verkefnum sem við erum að sinna,“ segir Halla Björk. Gunnar segir að það stefni að óbreyttu í allt að 3,5 milljarða halla á bæjarfélaginu á þessu ári. Þótt allir ætli nú að vinna saman muni bæjarfulltrúar eins og áður hafa tillögurétt. Þeir geti bókað afstöðu sína í einstökum málum. „Þannig verður áfram málefnalegur ágreiningur að hluta en vonandi sem allra minnstur. Síðan verðum við bara að leggja spilin á borðið í kosningunum og horfa fram á veginn. Fólk verður þá bara að horfa til þess hvað það vill,“ segir Gunnar þegar hann var spurður hvernig kjósendur ættu að meta einstaka flokka í næstu kosningum ef allir bæru sameignlega ábyrgð á stjórn bæjarins.
Akureyri Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Samstjórn allra flokka tekur við á Akureyri Nýr meirihluti allra flokka var myndaður í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Forseti bæjarstjórnar segir nauðsynlegt að allir komi að erfiðum og mikilvægum ákvörðunum til framtíðar. 22. september 2020 12:27 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Fleiri fréttir Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Sjá meira
Samstjórn allra flokka tekur við á Akureyri Nýr meirihluti allra flokka var myndaður í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Forseti bæjarstjórnar segir nauðsynlegt að allir komi að erfiðum og mikilvægum ákvörðunum til framtíðar. 22. september 2020 12:27