Veður

Fólki sem finnst rigningin góð ætti að geta notið dagsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Seinni partinn gæti glytt í sól norðan heiða þar sem hitinn verður í kringum tuttugu stigin. Víða annars staðar gæti verið vissara að hafa regnfötin við höndina.
Seinni partinn gæti glytt í sól norðan heiða þar sem hitinn verður í kringum tuttugu stigin. Víða annars staðar gæti verið vissara að hafa regnfötin við höndina. Veðurstofa Íslands

Suðlæg átt verður á landinu í dag, víða 5-10 m/s og súld eða rigning með köflum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkomulítið fram eftir degi en þar má búast við sæmilega öflugum síðdegisskúrum að því er segir hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgun. Hiti verður á bilinu 10 til 22 stig og sem fyrr hlýjast á Austurlandi.

Það dregur úr vætu í kvöld, en á morgun gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu um landið sunnan- og vestanvert. Vindstyrkurinn getur orðið meiri í vindstrengjum við fjöll, til að mynda á norðanverðu Snæfellsnesi. Þeir sem ferðast á húsbíl eða með eftirvagn eru hvattir til að skoða veðurathuganir áður en lagt er af stað.

Norðaustantil á landinu verður hins vegar heldur hægari vindur og þurrt fram á kvöld.

Þeir sem hafa gaman af því að hoppa í polla eiga eftir að njóta helgarinnar. Sólarvörnina virðist mega geyma uppi í skáp næstu daga miðað við veðurspána.Vísir/Vilhelm

Á sunnudag:

Gengur í suðaustan og sunnan 8-15 m/s með rigningu á köflum um landið S- og V-vert. Heldur hægari og þurrt að kalla NA-til. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast A-lands.

Á mánudag:

Austlæg eða breytileg átt 3-10 og skúrir, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:

Norðan og norðaustan 3-10 og skýjað með köflum, en 8-15 og dálítil væta við A-ströndina. Hiti 7 til 13 stig. Léttskýjað á S- og SV-landi og hiti 14 til 20 stig yfir daginn.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Norðaustlæg átt og væta með köflum um landið A-vert. Þurrt að kalla annars staðar, og yfirleitt léttskýjað SV-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast S-til.

Á föstudag:

Útlit fyrir breytilega átt með bjartviðri víða um land. Hlýtt í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×