Kjálkanes á eigið fé upp á 25,5 milljarða króna og borgaði tvo milljarða króna í arð

Næst stærsti eigandi Síldarvinnslunnar seldi bréf í henni fyrir 17 milljarða króna í fyrra. Félagið skuldar nánast ekkert og á eigið fé upp á 25,5 milljarða króna. Eigendur þess eru tíu einstaklingar.

Björgólfur Jóhannsson.
Björgólfur Jóhannsson.
Auglýsing

Kjálka­nes hagn­að­ist um 11,8 millj­arða króna í fyrra. Fjár­fest­inga­tekjur félags­ins á árinu 2021 voru 11,8 millj­arðar króna, sem er 10,6 millj­örðum krónum meiri slíkar tekjur en Kjálka­nes hafði á árinu 2020. Hagn­aður félags­ins jókst um 10,7 millj­arða króna milli ára og skýrist sú aukn­ing fyrst og fremst af sölu­hagn­aði hluta­bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni á síð­asta ári, en Kjálka­nes er enn annar stærsti eig­andi henn­ar. Síld­ar­vinnslan var skráð á markað á árinu 2021 og sam­hliða þeirri skrán­ingu seldi Kjálka­nes bréf fyrir alls 17 millj­arða króna, en bók­færður sölu­hagn­aður var níu millj­arðar króna. 

Eignir Kjálka­nes voru 28,5 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Þær juk­ust um 9,9 millj­arða króna milli ára. Bók­fært eigið fé var 25,5 millj­arðar króna um liðin ára­mót og eig­in­fjár­hlut­fall­ið, þar sem félagið skuldar afar lít­ið, var 89,2 pró­sent. Eigið fé Kjálka­nes jókst um 82 pró­sent milli ára, eða um 11,4 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í nýlega birtum árs­reikn­ingi Kjálka­ness. Stjórn félags­ins lagði til að greiddur yrði út tveggja millj­arða króna arður til hlut­hafa á árinu 2022 á grund­velli þess­arar frammi­stöð­u. 

Eiga í Síld­ar­vinnsl­unni og Sjóvá

Hlut­haf­arnir eru tíu tals­ins, en félagið er frá Greni­vík. Á meðal þeirra er Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Sam­herja, en aðrir hlut­hafar eru fólk sem teng­ist honum fjöl­skyldu­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Systk­ina­hóp­ur­inn á 8,67 pró­sent hlut hver. Stærstu ein­stöku eig­end­urnir eru Ingi Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, og Anna Guð­munds­dótt­ir, sem eiga 22,54 pró­sent hlut hvor. Bæði Ingi og Anna sitja í stjórn Síld­ar­vinnsli­unnar

Auglýsing
Útgerðarfyrirtækið Gjög­ur, sem heldur á 2,5 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta á Íslandi, er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, sem á enn 17,44 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni sem met­inn var á 9,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Auk þess á Kjálka­nes 34,55 pró­sent hlut í SVN eigna­fé­lagi, stærsta eig­anda trygg­inga­fé­lags­ins Sjó­vá, sem met­inn var á 2,6 millj­arða króna. ­Björgólfur er stjórn­ar­for­maður Sjó­vá.

Rauk upp vegna loðnu

Síld­ar­vinnslan, stærsta eign Kjálka­ness, var skráð á markað í maí í fyrra. Miðað við útboðs­gengi var virði hennar 101,3 millj­arðar króna við skrán­ingu. Það hefur hækkað gríð­ar­lega síðan þá, en við lok við­skipta í gær var félagið metið á 160 millj­arða króna. 

Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í félag­inu hófst af alvöru í fyrra­haust í aðdrag­anda þess að til­kynnt var um úthlutun á 904 þús­und loðnu­kvóta, þeim mesta sem úthlutað hafði verið í tvo ára­tugi. Síld­ar­vinnslan var á meðal þeirra útgerða sem fengu mest úthlut­að, eða 18,5 pró­sent alls kvóta sem fór til inn­lendra aðila. 

Þann 23. sept­­em­ber 2021 var mark­aðsvirði félags­­ins tæp­­lega 116 millj­­arðar króna. Næstu vik­una hækk­­aði virði bréfa í Síld­­ar­vinnsl­unni um tæp 13 pró­­sent og dag­inn áður en til­­kynnt var um loðn­u­kvót­ann var mark­aðsvirðið rúm­­lega 130 millj­­arðar króna. Dag­inn eft­ir, þegar til­­kynnt var um umfang úthlut­aðs loðnu­kvóta, hækk­­uðu bréfin um níu pró­­sent.  

Í dag er mark­aðsvirði Síld­­ar­vinnsl­unn­ar, líkt og áður sagði, 160 millj­­arðar króna og hefur hækkað um 44 millj­­arða króna frá 23. sept­­em­ber 2021. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent