Fótbolti

Karólína Lea snýr aftur í landsliðið og Ólöf Sigríður valin í fyrsta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnar hér sínu fyrsta marki á stórmóti, í 1-1 jafnteflinu við Ítalíu á EM síðasta sumar.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnar hér sínu fyrsta marki á stórmóti, í 1-1 jafnteflinu við Ítalíu á EM síðasta sumar. VÍSIR/VILHELM

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt hópinn sinn fyrir Pinatar æfingamótið sem fer fram á Spáni seinna í þessum mánuði.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir snýr aftur í íslenska landsliðið eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan á Evrópumótinu síðasta sumar.

Karólína Lea fékk tíma til að vinna sig út úr sínum meiðslum en þýska liðið Bayern München ákvað að passa upp á hana eftir EM í fyrra. Hún er byrjuð að æfa með þýska liðinu og snýr nú aftur í landsliðið sem eru miklar gleðifréttir.

Markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem er líka hjá Bayern, snýr líka aftur í landsliðið eftir að hafa meiðst á æfingu landsliðsins á Evrópumótinu í fyrra.

Einn nýliði er í hópnum, en það er Ólöf Sigríður Kristinsdóttir framherji Þróttar R. Ólöf Sigríður skoraði 4 mörk í 8 leikjum með Þrótti í Bestu deildinni í fyrra og hefur skorað 18 mörk í 39 leikjum í efstu deild fyrir tvítugt. Hún hefur enn fremur skorað 11 mörk í 24 leikjum fyrir yngri landslið Íslands. Ólöf hefur verið í miklum ham í Reykjavíkurmótinu í árbyrjun og er með tíu mörk í aðeins þremur leikjum þar.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir er líka að snúa aftur í landsliðið eftir meiðsli. Bæði Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hlín Eiríksdóttir eru líka í hópnum en Þorsteinn var gagnrýndur fyrir að velja þær ekki á síðasta ári.

Á Pinatar æfingamótinu mæta íslensku stelpurnar Skotlandi, Wales og Filippseyjum og verða allir leikirnir sýndir í beinu streymi á KSÍ TV.

  • Hópurinn
  • Markmenn

  • Sandra Sigurðardóttir - Valur - 48 leikir
  • Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Bayern Munich - 8 leikir
  • Telma Ívarsdóttir - Breiðablik - 1 leikur
  • Varnarmenn

  • Guðný Árnadóttir - AC Milan - 19 leikir
  • Elísa Viðarsdóttir - Valur - 49 leikir
  • Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 108 leikir, 8 mörk
  • Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 49 leikir
  • Guðrún Arnardóttir - Rosengard - 22 leikir, 1 mark
  • Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur - 12 leikir, 1 mark
  • Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir - Breiðablik - 11 leikir
  • Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Breiðablik - 4 leikir
  • Miðjumenn
  • Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 108 leikir, 37 mörk
  • Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Stjarnan - 96 leikir, 14 mörk
  • Alexandra Jóhannsdóttir - Fiorentina - 29 leikir, 3 mörk
  • Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern Munich - 22 leikir, 8 mörk
  • Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg - 21 leikur, 3 mörk
  • Sóknarmenn
  • Amanda Jacobsen Andradóttir - Kristianstads DFF - 9 leikir
  • Agla María Albertsdóttir - Breiðablik - 51 leikur, 4 mörk
  • Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg - 25 leikir, 7 mörk
  • Svava Rós Guðmundsdóttir - Gotham FC - 42 leikir, 2 mörk
  • Hlín Eiríksdóttir - Kristianstads DFF - 20 leikir, 3 mörk
  • Ólöf Sigríður Kristinsdóttir - Þróttur R.
  • Berglind Björg Þorvaldsdóttir - PSG - 69 leikir, 12 mörk
  • Leikir Íslands á mótinu:
  • Ísland - Skotland 15. febrúar kl. 14:00 á KSÍ TV
  • Ísland - Wales 18. febrúar kl. 19:30 á KSÍ TV
  • Ísland - Filippseyjar 21. febrúar kl. 19:30 á KSÍ TV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×