Spiluðu kunnuglegt stef eftir að hafa slegið Liverpool út Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. mars 2023 12:30 Klopp á hliðarlínunni í gærkvöld, miðvikudag. Jonathan Moscrop/Getty Images Real Madríd sló Liverpool út úr Meistaradeild Evrópu á heimavelli sínum, Santiago Bernabéu, í gærkvöld. Í kjölfarið spilaði plötusnúður heimaliðsins „You´ll never walk alone.“ Lagið sem er spilað fyrir hvern einasta heimaleik Liverpool.
Fyrir leik gærdagsins átti Liverpool erfitt verkefni fyrir höndum. Eftir að hafa tapað 2-5 á Anfield má segja að verkefnið hafi verið nær ógerlegt en Liverpool hefur áður komið til baka á undraverðan hátt í Meistaradeildinni. Slík endurkoma átti sér þó ekki stað í gær og skoraði Karim Benzema eina mark leiksins í 1-0 sigri Real sem vann þar með einvígið 6-2 samanlagt. Eftir leik, þegar leikmenn tókust í hendur og þökkuðu fyrir leikinn, þá ómaði YNWA í hátalarakerfinu. Af hverju? Við fyrstu sín mætti halda að Real væri að strá salti í sárin en liðið hefur slegið Liverpool reglulega út úr Meistaradeildinni á undanförnum árum og tvívegis orðið meistari eftir að leggja lærisveina Jürgen Klopp í úrslitum. Ástæðan fyrir að lagið var spilað er hins vegar sameiginleg virðingin sem ríkir á milli félaganna. Með því að spila lagið var Real að þakka Liverpool fyrir að sýna stuðning og virðingu í kjölfar andláts Amancio Amaro, heiðursforseta Real, í aðdraganda fyrri leiksins. Stuðningshópar beggja liða klöppuðu er lagið fór í gang sem merki um virðingu félaganna fyrir hvort öðru. Real Madrid played You'll Never Walk Alone after knocking Liverpool out the #UCL.It was part of a mark of respect and in response to Liverpool laying flowers in the first leg to pay tribute to Real Madrid honorary president Amancio Amaro, who recently passed away. pic.twitter.com/1k6QVd1fTZ— CBS Sports Golazo (@CBSSportsGolazo) March 15, 2023 Real Madríd er eins og áður sagði komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Dregið verður á morgun. Ásamt Real verða Napolí, Chelsea, Manchester City, Inter og AC Milan, Bayern München og Benfica í pottinum þegar dregið verður.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir „Ekki það sem við vildum en það sem við fengum“ Það var ekki bjart yfir Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, þegar hann mætti í viðtal eftir 1-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Eftir að hafa tapað 5-2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var brekkan brött fyrir drengina frá Bítlaborginni. 15. mars 2023 23:31 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Enski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn Fleiri fréttir Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli Sjá meira
„Ekki það sem við vildum en það sem við fengum“ Það var ekki bjart yfir Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, þegar hann mætti í viðtal eftir 1-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Eftir að hafa tapað 5-2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var brekkan brött fyrir drengina frá Bítlaborginni. 15. mars 2023 23:31