Innlent

Neyðast ó­vænt til að tæma laugina

Atli Ísleifsson skrifar
Starfsmenn laugarinnar geta nú athafnað sig í barnalauginni.
Starfsmenn laugarinnar geta nú athafnað sig í barnalauginni. Drífa Magnúsdóttir

Unnið er að því að tæma laugarkar Laugardalslaugar í Reykjavík og verður hún lokuð fram á laugardag. Forstöðumaður Laugardalslaugar segir í samtali við fréttastofu að um helgina hafi komið í ljós bilun í ristum í laugarkarinu og ekki hafi verið annað í stöðunni en að tæma karið.

„Það kom í ljós að festingarnar voru lausar og eina leiðin til að lagfæra þetta er að tæma laugina. Það er ekki hægt að notast við borvélar á botni laugarinnar án þess að tæma,“ segir Drífa Magnúsdóttir, forstöðumaður Laugardalslaugar.

Nokkurn tíma tekur að tæma laugina. Myndin var tekin í morgun.Drífa Magnúsdóttir

Hún segir að um sé að ræða tvær ristar sem þurfi að laga.

Drífa segir að tæming hafi hafist í gær og standi hún enn. Þó sé nú hægt að athafna sig í barnalauginni þó að enn sé eitthvað í að laugin með sundbrautunum tæmist. En við stefnum að því að opna aftur á laugardaginn.“

Á samfélagsmiðlum laugarinnar er tekið fram að loka þurfi lauginni vegna „alvarlegrar öryggisbilunar í laugarkari“.

Fastagestir Laugardalslaugar komu að lokuðum kofanum í morgun. Laugin mun opna á ný á laugardagsmorgun.Vísir/Atli

Takmörkuð opnun var í Laugardalslaug í gær þar sem opið var ofan í heitu pottana. Laugin öll sé hins vegar lokuð fram á laugardag.

Laugardalslaug var lokuð í fáeinar vikur síðasta haust vegna viðhalds. Fréttastofa heimsótti þá starfsmenn laugarinnar þar sem unnið var að framkvæmdum. Sjá má fréttina í spilaranum að neðan. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×