Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. júní 2023 08:09 Úkraínskur hermaður skýtur úr sprengjuvörpu við framlínuna nálægt Bakhmut. AP/Efrem Lukatsky Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd.
Hanna Maliar, varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði Rússa reyna að skapa ímynd rólegheita í kringum Bakhmut en í raun mætti sjá jafn mikið af fallbyssuskotum og var á hápunkti bardagans um borgina. Hún segir bardagann vera að þróast í nýjan fasa. „Bardaginn um Bakhmut-svæðið hefur ekki stoppað, hann heldur áfram og tekur á sig ólík form,“ sagði Maliar í viðtali við AP í Kænugarði. Rússar reyni nú að hrekja úkraínska hermenn úr hæðunum í kringum Bakhmut. „Við höldum þeim staðfastlega,“ sagði hún um Rússana í Bakhmut. Brotthvarf málaliða gæti haft afdrifarík áhrif Rússar litu á sigurinn í Bakhmut sem þátt í því að ná stjórn á austurhluta Donbas-svæðisin. Þá er borgin hluti af meira en þúsund kílómetra framlínu sem rússneski herinn telur sig verða að viðhalda. Það gæti reynst erfitt vegna brotthvarfs málaliða á vegum rússneska verktakafyrirtækisins Wagner Group frá borginni en þeir áttu stóran þátt í að Rússar náðu henni á vald sitt. Eigandi Wagner lýsti yfir brotthvarfi hópsins eftir að hafa staðfest að meira en tuttugu þúsund hermenn á vegum þeirra hefðu dáið í átökum. Í þeirra stað munu koma rússneskir hermenn. Úkraínumenn bjartsýnir Að sögn úkraínskra fulltrúa hersins hefur gengið vel að ná litlum sigrum, að ná strategískum staðsetningum Rússanna á sitt vald, sérstaklega á norðvestur og suðvestur síðu borgarinnar þar sem sveitir hersins hafa verið virkar. Átökin við Bakhmut hafa verið minna í sviðsljósinu undanfarna daga vegna linnulausra árása Rússa á Kænugarð. En áframhaldandi barátta um borgina gæti haft mikil áhrif. Rússar hafa gert mikið úr sigrinum heima fyrir og því væri áfall fyrir Pútín og hans menn að missa borgina aftur til Úkraínumanna. Michael Kofman, bandarískur rýnir, sagði í viðtali við War on the Rocks að Rússar muni einblína þeim mun meira á Bkahmut á næstunni og vegna brotthvarfs hermanna Wagner verði erfitt að verja borgina. Það gæti farið að Rússar missi borgina og þá verði blóðug átökin til einskis.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira