„Það er skelfilegt að vera með slasað dýr í höndunum og geta ekkert gert“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 28. nóvember 2021 21:04 Ester Júlía Olgeirsdóttir krefur Matvælastofnun svara. Stöð 2/Bjarni Kona sem reyndi ítrekað að ná í neyðarnúmer dýralækna um síðustu helgi þegar hundur hennar slasaðist alvarlega kallar eftir svörum frá Matvælastofnun. Hún segir óásættanlegt að fólk þurfi að horfa upp á dýr sitt þjást. Varaleið þurfi að standa til boða ef neyðarvakt svarar ekki.
Ester Júlía Olgeirsdóttir lenti í því síðastliðinn sunnudag að hundurinn hennar, Lúkas, slasaðist alvarlega. Þegar hún reyndi að hringja í neyðarnúmerdýralækna svaraði aftur á móti enginn, þrátt fyrir að dýralæknir eigi að vera á vakt. Hún lýsir því að bæði hún og sambýlismaður hennar hafi ítrekað reynt að ná sambandi en þegar það gekk ekki gengu þau niður listann yfir dýralækna á höfuðborgarsvæðinu. Eftir þó nokkur símtöl, þar sem flestir bentu aftur á neyðarnúmerið, gat einn dýralæknir tekið á móti hundinum. „Við fórum með hann til hennar en það var ekkert annað í stöðunni en að svæfa dýrið. Þetta var mjög erfiður dagur,“ segir Ester en hún furðar sig á því að dýralæknir á neyðarvakt svari ekki símanum. „Það getur vel verið að þetta eigi sér einhverja góða skýringu en þetta er ekki boðlegt að mínu mati.“ Svæfa þurfti hundinn Lúkas.Stöð 2/Bjarni Hún heyrði af sambærilegu máli þennan sama dag þar sem kona með kött reyndi ítrekað að ná sambandi við dýralækni á vakt um nóttina. „Hún reyndi margoft og á endanum hringdi hún í dýralækni úti á landi, en auðvitað gengur það ekkert upp,“ segir Ester. Sjálf tilkynnti Ester málið til Matvælastofnunar en segist ekki hafa nein svör enn sem komið er. Héraðsdýralæknir MAST í Suðvesturumdæmi staðfesti í samtali við fréttastofu að málið væri til skoðunar en það væri afar sjaldgæft að svona komi upp. Mikið álag væri á dýralæknum á þessum neyðarvöktum sem gæti skýrt af hverju dýralæknir svaraði ekki. „Ég vil að þetta verði bætt, því það er skelfilegt að vera með slasað dýr í höndunum og geta ekkert gert. Það er bara alveg hræðilegt,“ segir Ester. „Þannig að ég vil að þeir finni einhverja lausn, alla vega varaleið sem tekur við ef að dýralæknir er upptekinn.“
Gæludýr Hundar Dýraheilbrigði Dýr Tengdar fréttir Reyndu ítrekað að ná í neyðarvakt dýralækna án árangurs Dæmi komu upp um síðustu helgi þar sem ekki náðist í neyðarnúmer dýralækna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að málið sé til skoðunar en segir gríðarlega mikið álag á vöktunum mögulega skýringu. 28. nóvember 2021 12:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira
Reyndu ítrekað að ná í neyðarvakt dýralækna án árangurs Dæmi komu upp um síðustu helgi þar sem ekki náðist í neyðarnúmer dýralækna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að málið sé til skoðunar en segir gríðarlega mikið álag á vöktunum mögulega skýringu. 28. nóvember 2021 12:30