Mosfellsbær kærir Reykjavíkurborg

Horft yfir Mosfellsbæ, Álfsnes og Esjumela.
Horft yfir Mosfellsbæ, Álfsnes og Esjumela. mbl.is/Sigurður Bogi

Mosfellsbær hefur kært Reykjavíkurborg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna deiliskipulagsbreytingu á Esjumelum þess að lútandi að stór hluti svæðisins fari úr að vera athafnarsvæði yfir í iðnaðarsvæði. Kæran var lögð fram 26. júní.

Í tilkynningu frá Mosfellsbæ kemur fram að fara eigi í moltugerð undir beru lofti á svæðinu, en Mosfellsbær geti ekki sætt sig við það. Þá myndi breytingin gera starfsemi tveggja malbikunarstöðva mögulega. Er haft eftir Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, að breytingin skipti Mosfellinga miklu máli og að lágmarki þurfi hún að samræmast gildandi aðalskipulagi.

„Vegalengdin milli Esjumela og byggðarinnar í Leirvogstungu er sambærileg við vegalengdina að Álfsnesi. Á Álfsnesi hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í góðri samvinnu unnið að stærsta einstaka umhverfisverkefni síðari tíma sem er gas- og jarðgerðarstöðin GAJA sem vinnur úr lífrænum úrgangi í lokuðu mannvirki. Til þessa verkefnis hefur verið varið milljörðum en á sama tíma hefur Reykjavíkurborg úthlutað lóð þar sem fram mun fara moltugerð undir berum himni á Esjumelum, áform sem Mosfellsbær getur ekki sætt sig við enda fylgir moltugerð og annarri úrvinnslu lífræns úrgangs undir berum himni lyktarmengun sem ekki verður við unað. Mosfellsbær hefur ítrekað komið þessum áhyggjum á framfæri við Reykjavíkurborg, meðal annars á formlegum fundi með borgarstjóra, en án árangurs og því er farin sú leið að kæra borgina þó svo að hún sé ekki algeng í samskiptum sveitarfélaga,“ er haft eftir Haraldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert