Mikil hægrisveifla knýr fram þingkosningar á Spáni Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 4. júní 2023 16:31 Lýðflokkurinn er með pálmann í höndunum eftir sveitarstjórnar- og héraðskosningar á Spáni í lok maí og heldur vígreifur út í kosningabaráttuna fyrir þingkosningarnar þ. 23. júlí. Frá vinstri: Marga Prohens, forseti Lýðflokksins á Balear-eyjum, þar sem flokkurinn batt enda á stjórnartíð sósíalista, Isabel Diaz Ayuso, forseti Madrid, þar sem flokkurinn hefur hreinan meirihluta og Alberto Núñez Feijóo, formaður Lýðflokksins. Carlos Lujan/Getty Images Allt stefnir í gríðarlega harða og snarpa kosningabaráttu fyrir þingkosningar á Spáni í næsta mánuði. Talsverðar líkur eru á að öfgahægriflokkurinn VOX komist í ríkisstjórn í fyrsta sinn.
Sósíalistar biðu afhroð í sveitarstjórnar- og héraðskosningum Sósíalistar biðu algert afhroð í sveitarstjórnar- og héraðskosningunum sem haldnar voru á Spáni um síðustu helgi. Að sama skapi unnu hægri flokkarnir tveir stórsigur. Svo stóran að þeir tala sjálfir um hægri flóðbylgju í landinu. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og leiðtogi sósíalista, beið ekki boðanna heldur boðaði strax til þingkosninga á mánudagsmorgni. Og þar með hófst kosningabarátta sem, miðað við fyrstu dagana, verður upp á líf og dauða. Talsverðar líkur á að öfgahægriflokkur komist í ríkisstjórn Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að vinstri stjórnin falli og að við taki ríkisstjórn hægri flokkanna. Annars vegar hins borgaralega Lýðflokks, Partido Popular og hins vegar VOX, sem er öfgahægriflokkur sem 30% Spánverja skilgreina sem fasistaflokk. Flokkurinn hefur boðað að komist hann til valda verði ýmis lög sem auka jafnrétti kynjanna, réttindi hinsegin fólk og heimili þungunarrof, afnumin. Lýðflokksmönnum þykir mörgum hverjum óþægileg tilhugsun að þurfa að leita eftir samstarfi þeirra við myndun meirihluta en það kann að verða nauðsynlegt fari kosningarnar eins og kannanir núna sýna. Þeir draga því lappirnar núna við myndun meirihluta í hinum ýmsu héruðum Spánar þar sem þessir flokkar þurfa að vinna saman, til að mynda hægri meirihluta og segja að ekkert liggi á. Hræðsluáróður á báða bóga Sánchez notfærir sér þessa grýlu í sínum málflutningi og varar þjóðina við því að kjósi hún yfir sig hægri flokkana sé hún um leið að kjósa yfir sig ríkisstjórn í anda Trump, Bolsonaro og annarra popúlista sem komist hafa til valda á síðustu árum. Hægri flokkarnir róa á önnur mið, segja að hér í landi sé efnahagurinn í rúst. Það sé Sánchez og sundruðum vinstri flokkum að kenna, sem ekki geti komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut. Fyrstu skoðanakannanir benda óneitanlega til þess að meirihluti Spánverja sé á sömu skoðun.
Spánn Kosningar á Spáni Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira