Handbolti

Óðinn Þór frá­bær þegar Kadet­ten Schaff­hausen kom sér í góða stöðu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk í kvöld.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk í kvöld. VÍSIR/VILHELM

Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson eru einum sigri frá því að vera svissneskir meistarar í handbolta eftir sigur Kadetten Schaffhausen á HC Kriens í dag.

Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar þjálfara Kadetten Schaffhausen unnu góðan sigur í fyrsta leik liðanna á mánudag en þá mættust liðin á heimavelli Kriens.

Í kvöld var komið að Schaffhausen að spila á heimavelli og nýttu þeir sér tækifærið og komu sér í 2-0 í einvíginu. Óðinn Þór Ríkharðsson átti frábæran leik fyrir Schaffhausen. Hann skoraði 9 mörk og var markahæstur síns liðs.

Sigur Kadetten Schaffhausen í dag var nokkuð öruggur en liðið komst í sex marka forystu snemma í síðari hálfleiknum. Lokatölur 33-25 og Óðinn Þór og félagar geta því tryggt sér meistaratitilinn í þriðja leik liðanna á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×