Býður hærri vexti á innlánum í nýju appi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. nóvember 2020 15:05 Hilmar Kristinsson er verkefnastjóri yfir fjártækni hjá Kviku banka. Vísir/Vilhelm
Auður, fjármálaþjónusta Kviku, hefur gefið út app fyrir viðskiptavini sína og tvo nýja innlánsreikninga með hæstu mögulegu innlánsvöxtum í sínum flokkum, samkvæmt samanburðarsíðunni Aurbjörgu. Nýju reikningarnir eru annars vegar með sex mánaða binditíma og 1,55% vöxtum og hins vegar með 12 mánaða binditíma og 1,75% vöxtum. Um er að ræða fastvaxtareikninga sem þýðir að þeir vextir sem eru í gildi á stofndegi reiknings gilda út allan binditímann. Til samanburðar bjóða aðrar innlendar bankastofnanir upp á sambærilega reikninga með vöxtum að meðaltali 1,10% fyrir 6 mánaða reikninga og 1,28% fyrir tólf mánaða reikninga og í sumum tilfellum er gerð krafa um lágmarksinnstæðu. Auður hóf að bjóða upp á innlánsreikninga á netinu í byrjun síðasta árs. Í tilkynningu frá Auði segir að viðtökurnar hafi verið slíkar að á fyrsta mánuðinum höfðu á fimmta þúsund viðskiptavina stofnað innlánsreikninga hjá Auði. Viðskiptavinum hafi fjölgað ört síðan. Með nýju reikningunum er hægt að velja um fjórar innlánaleiðir hjá Auði. Auk nýju reikninganna er óbundinn sparnaðarreikningur sem ber 1% vexti og reikningur bundinn til 3 mánaða með 1,35% vöxtum. „Það er einnig afar ánægjulegt að tilkynna að ekki er lengur gerð krafa um 250 þúsund króna lágmarksinnstæðu svo nú geta allir notið hæstu mögulegu innlánsvaxta Auðar. Auður er eftir sem áður besti kosturinn fyrir fólk sem vill fá hæstu mögulegu innlánsvexti á sparnaðinn sinn,“ segir Hilmar Kristinsson, verkefnastjóri yfir fjártækni hjá Kviku.
Neytendur Íslenskir bankar Tengdar fréttir Stýrivextir lækka óvænt Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 0,75% 18. nóvember 2020 08:55 Landsbankinn hækkar vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum hækka um 0,15 til 0,20 prósentustig frá og með þriðjudeginum 17. nóvember. 16. nóvember 2020 23:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira
Stýrivextir lækka óvænt Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 0,75% 18. nóvember 2020 08:55
Landsbankinn hækkar vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum hækka um 0,15 til 0,20 prósentustig frá og með þriðjudeginum 17. nóvember. 16. nóvember 2020 23:31