Safn um sögu skipsstranda verði í gömlum sveitabæ í Meðallandi Kristján Már Unnarsson skrifar 28. febrúar 2021 21:08 Vera Roth, verkefnastjóri Kirkjubæjarstofu, við bæinn að Hnausum í Meðallandi. Einar Árnason Skaftfellingar vilja taka fornfræg bæjarhús að Hnausum í Skaftárhreppi undir safn um sögu skipsstranda. Strandlengjan úti fyrir Meðallandi var illræmd fyrr á tímum sökum tíðra skipsskaða.
Síðasti bóndinn á Hnausum, Vilhjálmur Eyjólfsson, lést árið 2016 og arfleiddi Landgræðsluna að jörðinni. Starfsmenn Kirkjubæjarstofu, þær Lilja Magnúsdóttir og Vera Roth, segja Skaftfellinga vilja gæða gömlu bæjarhúsin lífi á ný, þau elstu eru talin hafa verið risin þegar Eldhraunið rann árið 1783. Lilja Magnúsdóttir er kynningarfulltrúi Skaftárhrepps.Einar Árnason „Þannig að fólk hefur setið þarna í baðstofunni og horft á hraunið nálgast,“ segir Lilja Magnúsdóttir í fréttum Stöðvar 2 en hún er kynningarfulltrúi Skaftárhrepps. En gömlu húsin gegndu einnig því hlutverki að hýsa skipbrotsmenn. „Við viljum í samvinnu við Landgræðsluna setja hér á fót strandminjasafn,“ segir Vera Roth, sem er verkefnastjóri Kirkjubæjarstofu. Þær sjá einnig fyrir sér safn um sögu íslensks menningarheimilis, Vilhjálms og foreldra hans. Vilhjálmur Eyjólfsson, bóndi á Hnausum. Hann lést árið 2016.Atli Rúnar Halldórsson „Við viljum segja frá sögu hans og fjölskyldunnar. Þetta var svona menningarheimili,“ segir Lilja. „Jörðin er nátengd sögu skipsstranda,“ segir Vera en nánar má lesa um það á vefnum Eldsveitir. Þannig eru margir innanstokksmunir á Hnausum úr strönduðum skipum. „Ég mundi segja að þetta var í raun einkennandi fyrir skaftfellska bæi, að þú finnur strandgóss nánast á hverjum bæ,“ segir Vera. Séð yfir bæjarhúsin á Hnausum. Eldhraun og Eldvatn í baksýn. Jörðin er einnig þekkt fyrir brautryðjendastarf á sviði landgræðslu.Einar Árnason Bara í hreppsstjóratíð Eyjólfs Eyjólfssonar, föður Vilhjálms, urðu sextíu skipsskaðar úti fyrir Meðallandi. „Hún er átakasaga. Hún er áhrifarík. Og við teljum að það skipti miklu máli að varðveita hana því að henni er ekki haldið á lofti í dag,“ segir Vera Roth. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Nánar er sagt frá Hnausum í þættinum Um land allt, sem er á dagskrá Stöðvar 2 annaðkvöld, mánudagskvöld, og fjallar um Meðalland. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins:
Skaftárhreppur Söfn Um land allt Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira