„Búinn að ákveða að þetta yrði mitt síðasta tímabil“ Atli Arason skrifar 7. júní 2021 23:39 Jakob Örn Sigurðarson er hluti af 1982 árgangi KR þaðan sem landsliðsmenn á borð við Jón Arnór Stefánsson og Helgi Magnússon komu. Vísir/Bára Dröfn Frábærum ferli Jakobs Arnar Sigurðarsonar, leikmanns KR, er formlega lokið eftir 3-0 tap gegn Keflavík í undanúrslitum Dominos deildarinnar í kvöld. Skórnir eru á leið upp í hillu. „
Mér líður rosalega vel í líkamanum en ég var fyrir löngu búinn að ákveða að þetta yrði mitt síðasta tímabil og ég stend við það. Þetta er komið gott og búinn að vera langur ferill,“ sagði Jakob í leikslok. „Það er auðvitað sárt að tapa í síðasta leik en þegar maður spilar lengi þá kynnist maður því að maður tapar og maður sigrar. Þetta er upp og niður. Maður reynir bara að hugsa út í það jákvæða á ferlinum og hvað þetta var allt skemmtilegt. Ég reyni bara að vera sáttur,“ sagði Jakob Örn. Bakvörðurinn sem er uppalinn í Vesturbænum spilaði stóran hluta ferilsins í Svíþjóð áður en hann sneri aftur heim árið 2019. Engin úrslitakeppni var spiluð í fyrra og frestaðist því titilvörn KR-inga um eitt ár en liðið hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn sex ár í röð. „Ég er aðallega svekktur með frammistöðuna. Mér fannst við koma flatir inn í leikinn og náðum aldrei að komast í takt við leikinn og náðum heldur ekki að komast nálægt þeim. Þeir voru alltaf með þessa forystu 10-12 stig og hún endaði í 18. Þeir voru alltaf með stjórn á leiknum og við vorum að elta. Þetta var bara erfitt.“ Aðspurður að því hvers vegna KR-ingar komu svona flatir inn í leikinn var Jakob ekki alveg viss. „Það er erfitt að segja. Við höfum alltaf byrjað leikina vel, alla leiki á móti Keflavík í vetur. Fyrri hálfleikur hefur verið flottur hjá okkur en það var ekki þannig í dag. Ég veit ekki alveg nákvæmlega hvers vegna en það er alltaf erfitt að spila á móti svona góðu liði og sérstaklega þegar þú þarft að elta allan leikinn. Þeir eru með frábæran leikstjórnanda, þeir spila sem lið og kunna körfubolta, þannig þetta var erfitt,“ svaraði Jakob Örn. KR lagði mikla áherslu á því að stöðva Deane Williams og Dominykas Milka í leiknum og það gekk ágætlega framan af fyrsta leikhluta. KR-ingar þvinguðu þá í erfið skot og af gólfinu var Milka í 1/3 og Deane 3/6. Við það opnaðist þó fyrir aðra menn eins og Calvin Burks sem lét vaða að vild og var stigahæstur Keflvíkinga í fyrsta leikhluta með 9 stig. „Þeir spila saman og þeir taka það sem vörnin gefur þeim. Við stóluðum kannski of mikið á að reyna að stoppa þá [Williams og Milka] og sjá hvað hinir myndu gera en þeir bara stigu upp og settu skot og þá varð þetta enn erfiðara. Þeir voru alltaf með menn tilbúna inn á. Það er erfitt að stoppa þá þegar þeir finna alltaf besta opna skotið,“ sagði Jakob að lokum í sínu síðasta viðtali sem körfuboltaleikmaður.
Dominos-deild karla KR Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Körfubolti Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Íslenski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti Syrgir fimmtán mánaða son sinn Sport Fleiri fréttir Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti