Kalla bjórinn heim frá Afganistan Vésteinn Örn Pétursson skrifar 7. júní 2021 23:18 Þjóðverjar hafa þegar hafist handa við að draga herlið sitt, og fleira, frá Afganistan. Jan Woitas/Getty Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ákveðið að ráða verktaka í að flytja tæplega 23 þúsund lítra af bjór frá Afganistan aftur til Þýskalands, nú þegar Atlantshafsbandalagið (NATO) undirbýr að draga hermenn sína út úr Afganistan.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir hluta ástæðunnar vera að yfirmenn hafi lagt blátt bann við áfengisneyslu hermanna sökum aukins ofbeldis sem gætt hefur í Afganistan í aðdraganda þess að herlið hverfi þaðan á brott. Ekki var hægt að koma veigunum í verð af trúarlegum og menningarlegum ástæðum, en neysla áfengis er flestum íbúum landsins óheimil samkvæmt lögum. BBC hefur eftir talskonu þýska varnarmálaráðuneytisins að búið sé að finna verktaka til þess að fara með bjórinn til Þýskalands. Þýski miðillinn Der Spiegel greindi fyrst frá því á föstudag að þýskir hermenn ættu mikið af umframbirgðum af áfengi í búðum sínum. Almennt leyfist þeim að drekka tvo bjóra á dag, eða annað sem nemur því áfengismagni. Í Marmal-herbúðum í norðurhluta Afganistan er þannig að finna yfir 60 þúsund bjórdósir og hundruð vínflaska, sem ekki hafa nýst hermönnum sökum hinna nýju reglna. Sem stendur eru rúmlega 1.100 þýskir hermenn í Afganistan. NATO á útleið Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í apríl síðastliðnum að hann myndi draga allt bandarískt herlið út úr Afganistan fyrir 11. september 2021 en þá verða 20 ár liðin upp á dag frá árásunum á Tvíburaturnana í New York. Árásirnar voru kveikjan að innrás Bandaríkjanna í Afganistan haustið 2001. Skömmu eftir að Biden tilkynnti um þessi áform tóku leiðtogar bandalagsþjóða í NATO við að greina frá sams konar fyrirætlunum. Þeir ætli að draga herlið sitt frá Afganistan. Í kjölfarið hefur orðið aukning í ofbeldi og átökum víðs vegar um landið. Bandarísk stjórnvöld og aðrar NATO-þjóðir hafa kennt Talíbönum, ofstækisþjóðernishreyfingunni sem átt hefur í skæruhernaði við stjórnvöld í Afganistan og erlent herlið í landinu, um ástandið. Talíbanar hafa sjálfir hafnað því að eiga hlut að máli.
Bandaríkin NATO Þýskaland Afganistan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira