Lést eftir slys í Hvalfirði

Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir.
Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir.

Konan sem féll í skriðu í Flekkudal í Hvalfirði á þriðjudagskvöld lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi í morgun.

Hún hét Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir og var fædd árið 1977, að því er kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu hennar.

Sólveig, sem lætur eftir sig einn son, var viðskiptafræðingur frá Bifröst og var mikil útivistarmanneskja. Hún vann ötullega að því markmiði sínu að skoða og heimsækja alla fossa landsins. Þegar slysið varð átti hún 75 fossa að baki.

„Fjölskylda Sólveigar vill koma á framfæri þakklæti til Landhelgisgæslunnar auk hjúkrunar-, umönnunar- og sálgæslufólks sem lagði sig fram við mjög krefjandi aðstæður,“ segir í tilkynningunni.

„Sólveig var hraust manneskja og með líffæragjöf mun sú hreysti hennar færa nokkrum manneskjum betra líf. Læknateymi er væntanlegt utan úr heimi í dag og einhvers staðar bíður fólk fullt nýrrar vonar um nýtt og betra líf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert