Fjórir börðust um hverja íbúð í Þorpinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. apríl 2021 13:40 Íbúðirnar í byggingu. Þorpið Þorpið vistfélag hefur lokið úthlutun síðustu fimmtíu íbúða félagsins í Gufunesi í samstarfsverkefni félagsins og Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Tæplega fjórir umsækjendur voru um hverja íbúð sem úthlutað var en dregið var á milli þeirra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorpinu vistfélagi. Alls byggir Þorpið 137 íbúðir á svæðinu sem eru þær fyrstu í nýjasta hverfi borgarinnar í Gufunesi. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í júní en allar íbúðir félagsins hafa nú verið seldar. Allar íbúðir Þorpsins eru seldar á föstu verði sem er töluvert lægra en almennt gerist um nýbyggingar í Reykjavík. Kostnaðurinn var á bilinu 19-37 milljónir króna. Byggð Þorpsins í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Innan úr einni íbúðinni.Þorpið „Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali,“ segir í tilkynningu Þorpsins. „Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll, boltavelli og grasfleti. Torgið verður við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa, kaffihús, vinnurými, pósthús og þvottahús. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni þar sem gert er ráð fyrir sparkvelli og götuboltasvæði. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum. Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma. Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar verður heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.“ Tilgangur Þorpsins er að þróa og byggja fasteignir og byggingarlausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á hagkvæmni í byggingarkostnaði, grænar lausnir, deililausnir og vistvænt umhverfi.
Húsnæðismál Reykjavík Fasteignamarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira