Vaktin: Rússar hafa náð yfirráðum í Azovstal Hólmfríður Gísladóttir, Eiður Þór Árnason og Bjarki Sigurðsson skrifa 20. maí 2022 06:32 Úkraínskir hermenn að yfirgefa Azovstal-stálverið í Maríupól. Vísir/AP Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa sakað Rússa um að „vopnavæða“ matvælaöryggi í heiminum en Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands, segir Rússa ekki munu greiða fyrir útflutningi frá Úkraínu nema gegn afléttingu refsiaðgerða. „Þannig virka hlutirnir ekki, við erum ekki fávitar,“ sagði hann í gær. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gjöreyðilagt Donbas, sem þeir segjast vilja „frelsa“ og að svæðið sé nú hreint helvíti. Vadim Shishimarin, 21 árs rússneskur hermaður sem hefur verið ákærður fyrir stríðsglæp í Úkraínu, hefur játað að hafa orðið saklausum manni að bana og beðið eiginkonu hans fyrirgefningar. Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með leiðtogum Svíþjóðar og Finnlands í gær og sagði ríkin njóta fulls stuðings Bandaríkjanna í umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Tyrkir segjast hins vegar enn munu neita ríkjunum um aðild. Rannsókn Spiegel og rússneska miðilsins iStories hefur leitt í ljós að yngsta dóttir Vladimir Pútín Rússlandsforseta ferðaðist að minnsta kosti 50 sinnum til Þýskalands á árunum 2017 til 2019. Pútín hefur sjálfur gagnrýnt auðmenn fyrir tengsl þeirra við Evrópu. Forsvarsmenn McDonald's hafa komist að samkomulagi við Alexander nokkurn Govor um kaup á öllum veitingastöðum keðjunnar í Rússlandi. Govor hyggst reka staðina áfram undir öðru nafni. Hér má finna vakt gærdagsins.
Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gjöreyðilagt Donbas, sem þeir segjast vilja „frelsa“ og að svæðið sé nú hreint helvíti. Vadim Shishimarin, 21 árs rússneskur hermaður sem hefur verið ákærður fyrir stríðsglæp í Úkraínu, hefur játað að hafa orðið saklausum manni að bana og beðið eiginkonu hans fyrirgefningar. Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með leiðtogum Svíþjóðar og Finnlands í gær og sagði ríkin njóta fulls stuðings Bandaríkjanna í umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Tyrkir segjast hins vegar enn munu neita ríkjunum um aðild. Rannsókn Spiegel og rússneska miðilsins iStories hefur leitt í ljós að yngsta dóttir Vladimir Pútín Rússlandsforseta ferðaðist að minnsta kosti 50 sinnum til Þýskalands á árunum 2017 til 2019. Pútín hefur sjálfur gagnrýnt auðmenn fyrir tengsl þeirra við Evrópu. Forsvarsmenn McDonald's hafa komist að samkomulagi við Alexander nokkurn Govor um kaup á öllum veitingastöðum keðjunnar í Rússlandi. Govor hyggst reka staðina áfram undir öðru nafni. Hér má finna vakt gærdagsins.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Hernaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira