Innflytjandinn ákveðið að fjarlægja allt markaðsefni með Gylfa Þór Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 20. júlí 2021 13:27 Svona leit drykkjargangurinn í Hagkaup Skeifunni út í morgun en nú er búið að fjarlægja þennan bás. Vísir Innflytjandi orkudrykkjarins State Energy hefur ákveðið að taka niður allt auglýsingaefni með Gylfa Þór Sigurðssyni, fótboltamanni Everton og landsliðsmanni, sem mátti finna í Hagkaup og fleiri verslunum.
Gylfi er eitt af andlitum fyrirtækisins en hann var handtekinn á föstudag í tengslum við kynferðisbrot gagnvart ólögráða stúlku, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu. Þórarinn Þórhallsson, talsmaður State Energy á Íslandi, segir að ekkert annað hafi verið í stöðunni eftir fréttaflutninginn í dag. Hyggst fyrirtækið fylgjast með því hvernig málinu fram vindur. „Við erum slegin yfir þessu eins og öll þjóðin. Móðurfyrirtækið í Danmörku gerði samninginn við Gylfa en við hér á Íslandi ákváðum að taka efnið niður,“ segir Þórarinn í samtali við fréttastofu. Búið að taka niður myndirnar í Hagkaup Fyrr í dag staðfesti Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, að markaðsefni með myndum af Gylfa yrði fjarlægt úr verslunum Hagkaups. Þetta er eini staðurinn í Hagkaup Skeifunni sem hægt er að finna State Energy drykkina, og hvergi er mynd af Gylfa.Vísir/Hallgerður „Við ræddum við birginn í morgun um næstu skref í ljósi stöðunnar og það er innflytjandinn sem ákveður að skipta út öllu efni og að þetta yrði tekið niður og það kemur inn nýtt markaðsefni í framhaldinu,“ segir Sigurður í samtali við Vísi. Gylfi hefur verið andlit State Energy frá því í byrjun júní þegar hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við drykkjavöruframleiðandann danska. Fyrirtækið er meðal annars í eigu knattspyrnumannsins Christians Eriksen og tenniskonunnar Caroline Wozniacki. Margir af frægustu íþróttamönnum Danmerkur hafa gert samning við fyrirtækið. Lögreglan í Manchester greindi frá því í gær að hún hafi handtekið 31 árs gamlan knattspyrnumann í tengslum við rannsókn á kynferðisofbeldi gegn barni. Knattspyrnuliðið Everton greindi svo frá því í gær að um sé að ræða leikmann liðsins. Maðurinn var handtekinn á föstudag og síðar sleppt gegn tryggingu. Líkt og áður segir er þar um að ræða Gylfa Þór, samkvæmt heimildum fréttastofu. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, sagði í samtali við fréttastofu í dag að sambandið hafi ekki fengið upplýsingar um það hvort knattspyrnumaðurinn sem um ræðir hafi verið Gylfi Þór. Breski slúðurmiðillinn The Sun hafði í gær eftir heimildarmanni að lögreglan hafi gert húsleit á heimili mannsins og gert þar nokkra hluti upptæka. Breskir miðlar hafa ekki nafngreint hann af lagalegum ástæðum. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá State Energy á Íslandi.
Enski boltinn Auglýsinga- og markaðsmál Fótbolti England Mál Gylfa Þórs Sigurðssonar Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Forysta KSÍ ræddi um Gylfa í morgun Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir að sambandið hafi ekki fengið upplýsingar um hvort knattspyrnumaðurinn sem lögregla í Manchester handtók á föstudag hafi verið Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni. 20. júlí 2021 10:43 Leikmaður Everton til rannsóknar í lögreglumáli Enska fótboltaliðið Everton hefur staðfest að leikmaður þeirra sé til rannsóknar í lögreglumáli. Breskir miðlar greindu frá því í dag að leikmaðurinn hafi verið handtekinn grunaður um kynferðisbrot gegn barni. 19. júlí 2021 23:51 Leikmaður ensku deildarinnar grunaður um kynferðisbrot gegn barni Leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hefur verið handtekinn grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Enskir fjölmiðlar hafa ekki nafngreint manninn en segja hann 31 árs gamlan og giftan. 19. júlí 2021 21:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Innlent Fleiri fréttir Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Sjá meira
Forysta KSÍ ræddi um Gylfa í morgun Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir að sambandið hafi ekki fengið upplýsingar um hvort knattspyrnumaðurinn sem lögregla í Manchester handtók á föstudag hafi verið Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni. 20. júlí 2021 10:43
Leikmaður Everton til rannsóknar í lögreglumáli Enska fótboltaliðið Everton hefur staðfest að leikmaður þeirra sé til rannsóknar í lögreglumáli. Breskir miðlar greindu frá því í dag að leikmaðurinn hafi verið handtekinn grunaður um kynferðisbrot gegn barni. 19. júlí 2021 23:51
Leikmaður ensku deildarinnar grunaður um kynferðisbrot gegn barni Leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hefur verið handtekinn grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Enskir fjölmiðlar hafa ekki nafngreint manninn en segja hann 31 árs gamlan og giftan. 19. júlí 2021 21:51