Sjáðu VAR-dóminn sem gerði Zidane svo reiðan og alla dramatíkina hjá Real Madrid og Sevilla Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. maí 2021 16:00 Toni Kroos og Zinedine Zidane krefjast svara frá dómaranum eftir leik Real Madrid og Sevilla. getty/Burak Akbulut Myndbandsdómgæslan kom mikið við sögu í stórleik Real Madrid og Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Mikil spenna er á toppi spænsku deildarinnar. Atlético Madrid er á toppnum með 77 stig en Real Madrid og Barcelona koma þar á eftir með 75 stig. Sevilla er svo með 71 stig en ef liðið hefði unnið í gær, sem allt stefndi í, væri það enn með í titilbaráttunni. Á 13. mínútu kom Karim Benzema Real Madrid yfir en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Níu mínútum síðar kom Fernando Sevilla í 0-1 sem voru hálfleikstölur. Á 67. mínútu jafnaði varamaðurinn Marco Asensio fyrir Real Madrid eftir sendingu frá Toni Kroos. Sjö mínútum síðar upphófst svo ótrúleg atburðarrás. Eftir hornspyrnu gestanna geystust heimamenn í skyndisókn, Benzema slapp í gegn og Bono, markvörður Sevilla, braut á honum. Dómarinn Juan Martínez Munuera benti á vítapunktinn. Eftir skoðun á myndbandi var dómurinn dreginn til baka og þess í stað dæmt víti á Eder Militao, varnarmann Real Madrid, fyrir hendi í hornspyrnunni rétt áður en Benzema slapp í gegn. Ivan Rakitic tók vítaspyrnuna, skoraði af öryggi og kom Sevilla í 1-2. Allt benti til þess að það yrði sigurmarkið en á fjórðu mínútu í uppbótartíma átti Kroos skot sem fór af Eden Hazard og í netið. Lokatölur 2-2. Mörkin og umdeildu atvikin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Real Madrid 2-2 Sevilla Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, var saltvondur eftir leik og sagðist hvorki skilja upp né niður í VAR. Hann vildi fá víti fyrr í leiknum þegar Sevilla-maðurinn Joan Jordan fékk boltann í höndina. „Ég er mjög reiður. Þú verður að skýra reglurnar um hendi út fyrir mér. Ég ræddi við dómarann og óskaði eftir útskýringu. Hann sagði að þetta væri hendi á Militao en hitt ekki. Venjulega tala ég ekki um dómara en þetta var ekki gott,“ sagði Zidane. Með sigri í gær hefði Real Madrid komist á topp spænsku deildarinnar. Liðið þarf hins vegar núna að treysta á að Atlético Madrid misstígi sig til að verja Spánarmeistaratitilinn. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Spænski boltinn Tengdar fréttir Real Madrid bjargaði stigi á lokasekúndunum Liðin í 3. og 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, Real Madrid og Sevilla skildu jöfn eftir fjörugan leik í spænsku höfuðborginni í kvöld. Góð úrslit fyrir topplið Atletico Madrid. 9. maí 2021 21:00 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Leik lokið: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Sjá meira
Mikil spenna er á toppi spænsku deildarinnar. Atlético Madrid er á toppnum með 77 stig en Real Madrid og Barcelona koma þar á eftir með 75 stig. Sevilla er svo með 71 stig en ef liðið hefði unnið í gær, sem allt stefndi í, væri það enn með í titilbaráttunni. Á 13. mínútu kom Karim Benzema Real Madrid yfir en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Níu mínútum síðar kom Fernando Sevilla í 0-1 sem voru hálfleikstölur. Á 67. mínútu jafnaði varamaðurinn Marco Asensio fyrir Real Madrid eftir sendingu frá Toni Kroos. Sjö mínútum síðar upphófst svo ótrúleg atburðarrás. Eftir hornspyrnu gestanna geystust heimamenn í skyndisókn, Benzema slapp í gegn og Bono, markvörður Sevilla, braut á honum. Dómarinn Juan Martínez Munuera benti á vítapunktinn. Eftir skoðun á myndbandi var dómurinn dreginn til baka og þess í stað dæmt víti á Eder Militao, varnarmann Real Madrid, fyrir hendi í hornspyrnunni rétt áður en Benzema slapp í gegn. Ivan Rakitic tók vítaspyrnuna, skoraði af öryggi og kom Sevilla í 1-2. Allt benti til þess að það yrði sigurmarkið en á fjórðu mínútu í uppbótartíma átti Kroos skot sem fór af Eden Hazard og í netið. Lokatölur 2-2. Mörkin og umdeildu atvikin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Real Madrid 2-2 Sevilla Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, var saltvondur eftir leik og sagðist hvorki skilja upp né niður í VAR. Hann vildi fá víti fyrr í leiknum þegar Sevilla-maðurinn Joan Jordan fékk boltann í höndina. „Ég er mjög reiður. Þú verður að skýra reglurnar um hendi út fyrir mér. Ég ræddi við dómarann og óskaði eftir útskýringu. Hann sagði að þetta væri hendi á Militao en hitt ekki. Venjulega tala ég ekki um dómara en þetta var ekki gott,“ sagði Zidane. Með sigri í gær hefði Real Madrid komist á topp spænsku deildarinnar. Liðið þarf hins vegar núna að treysta á að Atlético Madrid misstígi sig til að verja Spánarmeistaratitilinn. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Real Madrid bjargaði stigi á lokasekúndunum Liðin í 3. og 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, Real Madrid og Sevilla skildu jöfn eftir fjörugan leik í spænsku höfuðborginni í kvöld. Góð úrslit fyrir topplið Atletico Madrid. 9. maí 2021 21:00 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Leik lokið: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Sjá meira
Real Madrid bjargaði stigi á lokasekúndunum Liðin í 3. og 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, Real Madrid og Sevilla skildu jöfn eftir fjörugan leik í spænsku höfuðborginni í kvöld. Góð úrslit fyrir topplið Atletico Madrid. 9. maí 2021 21:00