Býr til hlaðvarp um loðnuvertíðina og sjávarútveg

Loðnuskip að veiðum við Þorlákshöfn
Loðnuskip að veiðum við Þorlákshöfn mbl.is/Golli

Í vikunni fór í loftið hlaðvarpið Loðnufréttir í umsjá Ingva Þórs Georgssonar, ritstjóra Loðnufrétta.is. Nú þegar eru tveir þættir komnir í loftið fyrir loðnuáhugamenn sem bíða eftir að fara að sjá og heyra sögur af vertíðinni.

„Í ljósi þess að vertíðin í ár verður mun skemmri en í fyrra sökum úthlutunar var ákveðið að bregða á það ráð að hita aðeins upp í staðinn og búa til 5-6 þætti fyrir þau allra hörðustu en hugmyndin er að sjálfsögðu líka að reyna að fá fleiri til að fylgjast með." segir Ingvi Þór.

Ingvi Þór Georgsson.
Ingvi Þór Georgsson.

Í fyrsta þætti er tekin létt yfirferð á vertíðinni auk þess sem rætt er við Geir Zoega, skipstjóra á Polar Amaroq, en hann hefur getið af sér gott orð sem skipstjóri hér heima og í Grænlandi. Í þætti tvö var farið yfir verðmætasköpun síðustu vertíðar, aflatölur og spáð í spilin fyrir komandi vertíð.

Næstu þættir sem líta dagsins ljós eru samtöl við fólk sem stýrir hátæknivinnslum, markaðsmálum og tengdum iðnuðum til að kynnast því frá öllum hliðum hvernig loðnan hefur áhrif á efnahaginn, þjóðarsálina og sjávarútveg. Þá verður jafnframt fjallað um veiðarfæri, hvort betra sé að vera á loðnuflotvörpu eða nót við veiðarnar og margt fleira.

Ingvi Þór hefur undanfarna 12 mánuði halda úti hlaðvarpinu Pyngjan sem fjallar um ársreikninga fyrirtækja og viðskipti almennt ásamt Arnari Þór Ólafssyni.

Hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »