Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 20. október 2021 12:01 Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis, Guðrún Sighvatsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir til vinstri, Ingi Tryggvason fyrir miðju, Katrín Pálsdóttir og Bragi Rúnar Axelsson til hægri. Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu varðar sektargerðin brot á ákvæði kosningalaga um frágang kjörgagna. Greint hefur verið frá því að yfirkjörstjórnin hafi skilið eftir óinnsigluð atkvæði að talningu lokinni. Karl Gauti Hjaltason, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi, kærði talninguna til lögreglu. Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Samkvæmt heimildum fréttastofu fékk Ingi hæstu sektargerðina er hljóðar upp á 250 þúsund krónur en hinir meðlimir yfirkjörstjórnarinnar fengu sektargerð upp á 150 þúsund krónur. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru meðlimir yfirkjörstjórnar ósáttir við niðurstöðu málsins og hyggjast að minnsta kosti tveir ekki greiða sektina - og eiga ekki von á að aðrir geri það heldur. Meðlimir vísa meðal annars til þess að brotin þurfi að vera framin af ásetningi til að teljast refsiverð og telja sig í raun ekki hafa brotið af sér. Greiði fólk ekki sektina verða næstu skref hjá lögreglu að taka ákvörðun um mögulega ákæru og gæti málið í kjölfarið ratað fyrir dómstóla. Ekki var gengið frá kjörgögnum með réttum hætti á milli talninga í Norðvesturkjördæmi og atkvæðin voru skilin eftir óinnsigluð.vísir/Vilhelm Ágreiningur um talningu Að minnsta kosti tólf kærur hafa borist vegna þingkosninganna en undirbúningskjörbréfanefnd liggur nú yfir næstu skrefum í málinu og fundaði meðal annars í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ágreiningur innan yfirkjörstjórnarinnar um talninguna og til marks um það undirrita tveir meðlimir ekki ný svör yfirkjörstjórnar við kærum til kjörbréfanefndar. Í samtali við fréttastofu segist einn meðlimur yfirkjörstjórnar telja að fyrri talning eigi að gilda og vísar meðal annars til þess að vant talningafólk hafi séð um hana. Kjarninn greindi frá því í morgun að á öryggismyndavélum við tvo innganga í salinn þar sem óinnsigluðu kjörgögnin voru geymd að fólk sjáist ganga inn og út úr salnum á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar.
Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Lögreglumál Norðvesturkjördæmi Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fleiri fréttir Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Sjá meira