Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. maí 2021 13:29 Rússar hafa ekki undan í framleiðslu bóluefnisins Sputnik V. AP/Pavel Golovkin Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu.
Með samningunum munu Rússar geta dreift bóluefninu á mun meiri hraða til ríkja í Suður-Ameríku, Mið-Austurlöndum og Afríku sem hafa þegar tryggt sér skammta af bóluefninu. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa að mestu einbeitt sér að því að tryggja bóluefnadreifingu innan sinna ríkja og er því mikil eftirspurn eftir Covid-19 bóluefnum í ríkjum sem framleiða ekki eigin bóluefni. Áhyggjur um virkni Sputnik V bóluefnisins hafa minnkað töluvert eftir að læknatímaritið The Lancet greindi frá því að niðurstöður víðtækra rannsókna gæfu til kynna að bóluefnið veitti vörn í 91 prósentum tilvika. Undanfarið hafa áhyggjur hins vegar verið uppi um dreifingu bóluefnisins en Rússar hafa gert samninga við fjölda ríkja víða um heim um kaup á hundruð milljónum bóluefnaskammta. Hins vegar hefur aðeins brot af því verið afhent þeim ríkjum og því mikil þörf á hraðari framleiðslu efnisins. Þá hefur Rússland gert samninga við lyfjaframleiðendur í ýmsum ríkjum, þar á meðal á Indlandi, Suður-Kóreu, Brasilíu, Serbíu, Tyrklandi, Ítalíu og fleirum um framleiðslu Sputnik V. Svo virðist þó vera sem framleiðendur utan Rússlands hafi ekki hafið framleiðslu af alvöru, nema í Hvíta-Rússlandi og Kasakstan. Breska tölfræðistofan Airfinity hefur áætlað að Rússland hafi gert samninga um sölu á um 630 milljón skömmtum af Sputnik V við meira en 100 ríki en aðeins 11,5 milljón skammtar hafa verið afhentir hingað til.
Rússland Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. 29. apríl 2021 23:17 Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. 21. apríl 2021 12:55 Streymdu til Serbíu í ókeypis bólusetningu Þúsundir streymdu frá Bosníu og Hersegóvínu, Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu yfir landamærin til nágranna sinna í Serbíu í dag þar sem yfirvöld bjóða upp á ókeypis bólusetningu yfir helgina. 27. mars 2021 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira
Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. 29. apríl 2021 23:17
Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. 21. apríl 2021 12:55
Streymdu til Serbíu í ókeypis bólusetningu Þúsundir streymdu frá Bosníu og Hersegóvínu, Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu yfir landamærin til nágranna sinna í Serbíu í dag þar sem yfirvöld bjóða upp á ókeypis bólusetningu yfir helgina. 27. mars 2021 20:00