Sinnti 43 flutningum vegna Covid-19

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti alls 43 sjúkraflutningum vegna Covid-19 síðasta sólarhringinn. 

Fram kemur í tilkynningu frá slökkviliðinu að sólarhringurinn hafi verið annasamur. 

Í heildina var 116 sjúkraflutningum sinnt, þar af voru 19 forgangsflutningar og 43 vegna Covid-19. 

Dælubílar sinntu aftur á móti aðeins þremur minni háttar verkefnum í gær og nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert