Enski boltinn

Táningur byrjaði óvænt hjá Liverpool í gær og fékk hrós frá Klopp og Thiago

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tyler Morton reynir langa sendingu í leiknum og svo sést hann með knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp eftir leik.
Tyler Morton reynir langa sendingu í leiknum og svo sést hann með knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp eftir leik. Getty/Daniel Chesterton

Jürgen Klopp henti ungum leikmann sínum út í djúpu laugina í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar Liverpool vann 2-0 sigur á Porto á Anfield.

Hinn nítján ára gamli Tyler Morton var inn á miðjunni með þeim Thiago og Alex Oxlade-Chamberlain.

Morton hafi spilað í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni fjórum dögum fyrr þegar hann kom inn á sem varamaður sex mínútum fyrir leikslok á móti Arsenal.

Nú var strákurinn kominn í byrjunarliðið og hann spilaði allan leikinn. Hann fékk líka nóg af hrósi eftir leikinn.

„Hann stóð sig einstaklega vel,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, við BT Sport eftir leikinn.

„Hann er góður leikmaður. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd að hann gat skilað frammistöðu eins og þessari,“ sagði Klopp.

Mohamed Salah skoraði seinna mark Liverpool eftir að Morton hafði brotið upp leikinn með frábærri sendingu fram völlinn.

Thiago skoraði fyrra mark leiksins og hann var ánægður með að spila við hlið táningsins á miðju Liverpool.

„Sumir leikmenn, sem spila vanalega ekki hjá okkur, áttu stórkostlegan leik,“ sagði Thiago og hélt áfram:

„Þessi vegna erum við mjög ánægðir því það er mikill metnaður og hungur í öllum í liðinu,“ sagði Thiago.

„Ég elska að æfa og spila með ungum leikmönnum sem hafa mikið hungur í upphafi ferils síns og get um leið gefið þeim góð ráð til að verða betri og búa sér til bjartari framtíð,“ sagði Thiago.

„Við erum mjög ánægðir með Tyler. Hann er frábær leikmaður. Hann er búinn að vera að æfa með okkur og átti skilið að vera hluti af liðinu í kvöld,“ sagði Thiago.

„Hann stóð sig stórkostlega og ég held að hann eigi eftir að eiga frábæran feril hér hjá Liverpool sem og í fótboltanum. Við erum ánægðir með að hafa hann hjá okkur og það var frábært að spila með honum í kvöld,“ sagði Thiago.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×