Samherji bætir aftur við sig í Eimskip og gerir yfirtökutilboð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2020 12:11 Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja. Vísir/Egill
Samherji Holding ehf., annar helmingur Samherjasamstæðunnar, hefur á ný eignast meira en 30 prósenta hlut í Eimskipafélagi Íslands og mun félagið gera yfirtökutilboð til allra hluthafa Eimskipafélagsins. Ekki er stefnt að afskráningu félagsins úr kauphöllinni. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar sem Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja undirritar. Þar er greint frá því að Samherji Holding hafi bætt við sig 2,93 prósent hlut í Eimskipi og þar með farið úr 27,35 prósenta hlut í 30,28 prósenta hlut. Samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti er Samherja Holding skylt að gera öðrum hluthöfum Eimskipafélagsins yfirtökutilboð innan fjögurra vikna, en slík skylda myndast þegar aðili eignast að minnsta kosti 30 prósent atkvæðisréttar í félagi. Óskuðu síðast eftir undanþágu Þetta er því í annað sinn á árinu sem Samherji Holding fer yfir 30 prósenta hlut í Eimskipafélaginu en í mars var tilkynnt um að félagið hygðist gera öðrum hluthöfum Eimskipafélagsins tilboð, á sama grundvelli og nú. Samherji óskaði hins vegar skömmu síðar eftir undanþágu frá tilboðsskyldu í Eimskipafélagið, vegna aðstæðna á fjármálamarkaði í ljósi COVD-19, bæði hér á landi og erlendis. Fjármálaeftirlitið féllst á undanþáguna. Áður en undanþágan var veitt hafði Samherji Holding þó losað sig við tilboðsskylduna með því að fara undir 30 prósenta hlut í Eimskipafélaginu. Félagið seldi þá 2,93 prósent hlut í Eimskipafélaginu og fór þá niður í 29,99 prósenta hlut. Vilja Eimskip áfram á hlutabréfamarkaði Í annarri tilkynningu til Kauphallar er haft eftir Þorsteini Má að tilgangur kaupanna nú sé að ljúka tilboðsskyldunni sem undanþága fékkst fyrir í mars. Kaupin endurspegli þá trú sem stjórnendur Samherja Holding hafi á rekstri Eimskips. „Eimskip er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða sem saman fara með rúmlega helming hlutafjár. Samherji Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hlutabréfamarkað og stjórnendur Samherja Holding binda vonir við að eiga áfram gott samstarf við aðra hluthafa Eimskips.“
Markaðir Sjávarútvegur Skipaflutningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Viðskipti innlent Kaupa Íslensk verðbréf Viðskipti innlent Aukið atvinnuleysi Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Sjá meira