ÍR-ingar koma áfram á óvart

Kwame Quee skoraði mark Grindavíkur í kvöld.
Kwame Quee skoraði mark Grindavíkur í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Nýliðar ÍR koma áfram á óvart í 1. deild karla í knattspyrnu en þeir náðu í kvöld jafntefli, 1:1, gegn Grindvíkingum í annarri umferð deildarinnar.

Leikið var á heimavelli Grindvíkinga í Safamýri í Reykjavík og allt stefndi í heimasigur. Kwame Quee skoraði fyrir Grindavík á 10. mínútu og þannig var staðan þar til í uppbótartíma leiksins.

Þá jafnaði Bragi Karl Bjarkason fyrir ÍR-inga og jafntefli varð niðurstaðan.

ÍR-ingar eru þá komnir með fjögur stig en þeir unnu óvæntan útisigur á Keflvíkingum í fyrstu umferðinni. Grindvíkingar töpuðu fyrir Fjölni og eru því aðeins með eitt stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert