Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2023 13:39 Sólveig Anna ásamt Daníel lögmanni Eflingar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vísir/Lillý Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að Efling fengi til föstudags til að skila greinargerð í deilu félagsins við ríkissáttasemjara um hvort félaginu sé skylt að afhenda félagatal sitt vegna miðlunartillögu sáttasemjara. Fyrirtaka í málinu fór fram í héraðsdómi eftir hádegið.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði fimmtudaginn 26. janúar fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Tillagan var lögð fram á meðan atkvæðagreiðslu um þrjú hundrað félagsmanna Eflingar á sjö Íslandshótelum á höfuðborgarsvæðinu stendur. Hún sneri að því að allir félagsmenn Eflingar fái að kjósa um samning sem er samhljóða þeim sem Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins gerðu með sér. Aðalsteinn taldi deilu aðila í slíkum hnút að rétt væri að félagsmenn Eflingar fengu að segja sinn hug. Taldi hann sig hafa til þess fulla lagaheimild. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, telur Aðalstein hafa brotið lög með tillögunni enda hafi hann ekki ráðgast við formann Eflingar í aðdraganda þess að tillagan var lögð fram. Sáttasemjari hefur kallað eftir félagatalinu frá Eflingu til að atkvæðagreiðsla geti farið fram meðal félagsmanna. Efling neitar að afhenda listann og ákvað sáttasemjari því að fara með málið fyrir dómstóla. Þar fékk það flýtimeðferð og var á dagskrá nú á öðrum tímanum. Daníel Isebarn Ágústsson, lögmaður Eflingar, hafnaði kröfunni fyrir hönd Eflingar í dag og óskaði eftir tveggja vikna frest til að skila greinargerð og gögnum í málinu. Andri Árnason, lögmaður ríkissáttasemjara í deilunni, mótmælti beiðninni og sagði frestinn of langan. Kallaði hann eftir því að málið yrði flutt í vikunni. Fór svo að Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn og verður málið flutt sama dag. Greinargerð verði skilað að morgni og málflutningur fari fram eftir hádegið. Atkvæðagreiðslu um verkfall tæplega þrjú hundruð félagsmanna Eflingar sem starfa á sjö hótelum Íslandshótela á höfuðborgarsvæðinu lýkur í dag. Von er á niðurstöðu um kvöldmatarleytið.
Kjaramál Kjaraviðræður 2022-23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira