Refsing milduð umtalsvert

Gunnar Jóhann hefur setið í fangelsi síðan hann var handtekinn …
Gunnar Jóhann hefur setið í fangelsi síðan hann var handtekinn að morgni 27. apríl 2019. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Áfrýjunardómstóll í Noregi hefur mildað dóminn yfir Gunn­ari Jó­hanni Gunn­ars­syni, sem í októ­ber hlaut 13 ára fang­els­is­dóm fyr­ir að ráða hálf­bróður sín­um, Gísla Þór Þór­ar­ins­syni, bana með hagla­skoti að morgni 27. apríl 2019, í fimm ár. 

Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins í gærkvöldi en Vísir greindi fyrstur íslenskra miðla frá niðurstöðunni.

Gunnar hefur alltaf haldið fram að um slysaskot hafi veri að ræða og féllust fjórir af sjö dómurum við áfrýjunardómstólinn á þá skýringu, það er manndráp af gáleysi. 

Málið fór fram fyrir lög­manns­rétti Háloga­lands í Tromsø og sótti Tor­stein Lindquister héraðssak­sókn­ari málið fyr­ir hönd héraðssak­sókn­ara­embætt­is­ins í Troms og Finn­mark líkt og í héraðsdómi. Verjandi Gunnars var Bjørn Gulstad í héraði sem og í áfrýjunarmálinu ásamt öðrum verj­anda og eig­anda frá sömu lög­manns­stofu, Brynj­ari Mel­ing, sem hvað þekkt­ast­ur er fyr­ir að ann­ast málsvörn Najmudd­in Faraj Ahmad, öðru nafni mulla Krek­ar, eins af leiðtog­um kúr­dísku hryðju­verka­sam­tak­anna Ans­ar al-Islam, í máli sem gekk meira og minna í 17 ár í Nor­egi, þar til Krek­ar var að lok­um fram­seld­ur til Ítal­íu í fyrra.

Verjendur Gunnars sögðu fyrir rétti að Gunnar hefði ekki ætlað að ráða bróður sínum bana held­ur hafi skot hlaupið af hagla­byssu, sem Gunn­ar hafði meðferðis, í læri Gísla Þórs þegar þeir tók­ust á um vopnið. Aftur á móti hélt saksóknari því fram að um viljaverk hefði verið að ræða en Gunnar hafði ítrekað hótað því að drepa bróður sinn. Hann fór fram á að refsing héraðsdóms yrði staðfest. 

Afar mjótt var á munum fyrir dómi í gær en þrír dómarar töldu rétt að staðfesta niðurstöðu héraðsdóms og trúðu ekki þeim skýringum að um slysaskot hefði verið að ræða. Fjórir dómarar töldu aftur á móti að Gunnar hefði ekki ætlað að skjóta bróður sinn. 

Gunnar beið eftir Gísla á heimili þess síðarnefnda vopnaður haglabyssu. Þegar Gísli kom heim skipaði Gunnar honum að fara inn á baðherbergi en Gísli hlýddi ekki og gekk í átt að Gunnari. Er það niðurstaða meirihlutans að hann hafi ýtt við vopninu og skotið óvart hlaupið af úr byssunni. Tæknideild norsku öryggislögreglunnar, Kripos, taldi að galli hefði verið í öryggi haglabyssunnar og hann hefði jafnvel orðið til þess að skot hljóp úr byssunni. Eins hefði hreyfingin mögulega orðið til þess að Gunnar þrýsti óvart á gikkinn. Ekki sé hægt að fullyrða að um viljaverk hefði verið að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert