Ekkert ferðaveður á morgun og hinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. maí 2023 13:29 Það er ekkert ferðaveður þó þetta sé mikil ferðahelgi. Vísir/Vilhelm Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi fram eftir degi. Veðurfræðingur segir enn eina lægðina á leið til landsins en veður eigi að batna eftir helgi.
Appelsínugul viðvörun er í gildi á Austfjörðum vegna norðvestan storms eða roks. Má þar búast við 20 til 28 metrum á sekúndu fram eftir degi og allt að 35 metrum á sekúndu í hviðum. Viðvörunin er í gildi þar til klukkan þrjú síðdegis. Á norðurlandi eystra var gul viðvörun í gildi fram á hádegi og til klukkan þrjú á Austurlandi að Glettingi. Á miðhálendinu og Suðausturlandi er gul viðvörun sömuleiðis í gildi til klukkan þrjú. „Það er lægð sem var fyrir norðaustan land og er á leiðinni austur núna. Henni fylgdi norðvestan strengur sem að var nú á öllu Norðurlandi í nótt en er að færast austur á bóginn og hangir yfir Austurlandinu fram eftir degi,“ segir Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Margir eru á ferðalagi um landið vegna Hvítasunnu. „Það er ekkert ferðaveður búið að vera seinnipart gærdagsins, í nótt og í dag. Það verður aðeins betra í kvöld en svo snýst aftur í suðavestanátt á morgun og verður víða á bilinu átta til fimmtán metrar.“ Og það veður verði út mánudaginn. Þegar líði á vikuna ætti veður að batna. „Útlitið fyrir vikuna er nokkuð gott víðast hvar á landinu. Það er útlit fyrir að hæð komi hér yfir landið með hægari vindi og þokkalegum hlýindum en útlit samt fyrir að það verði viðloðandi skýjaflákar eða -breiður við Vesturlandið,“ sagði Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Veður Tengdar fréttir Appelsínugul viðvörun og úrkomusvæði nálgast Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á Austfjörðum og gul víðar um landið. Á Austfjörðum er spáð norðvestan 20-28 metrum á sekúndu og gert ráð fyrir að vindhviður geti farið yfir 35 metra á sekúndu. 27. maí 2023 09:38 Illviðri yfir fyrstu ferðahelgina: „Bílar gætu jafnvel fokið“ Lítið sem ekkert ferðaveður verður yfir hvítasunnuhelgina, sem oft er kölluð fyrsta ferðahelgi ársins. Veðurfræðingur segir bálhvasst verða í nótt og í fyrramálið en að bjart og fallegt verði yfir laugardaginn á vestanverðu landinu. 26. maí 2023 19:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Víða gola og dálítil væta Hiti gæti náð fimmtán stigum norðaustantil Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Vaxandi suðaustanátt og bætir í rigningu Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi Skúrir og slydduél í suðlægum áttum Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Búast má við slyddu Rigning með köflum víðast hvar Víðast dálitlar skúrir en bjartara norðanlands Bjartviðri á verkalýðsdaginn Að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil Norðlægari vindur í dag en um helgina Hvassast sunnantil og hlýjast vestantil Lægð nálgast landið úr austri Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Sól og allt að þrettán gráður í borginni Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Sjá meira
Appelsínugul viðvörun og úrkomusvæði nálgast Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á Austfjörðum og gul víðar um landið. Á Austfjörðum er spáð norðvestan 20-28 metrum á sekúndu og gert ráð fyrir að vindhviður geti farið yfir 35 metra á sekúndu. 27. maí 2023 09:38
Illviðri yfir fyrstu ferðahelgina: „Bílar gætu jafnvel fokið“ Lítið sem ekkert ferðaveður verður yfir hvítasunnuhelgina, sem oft er kölluð fyrsta ferðahelgi ársins. Veðurfræðingur segir bálhvasst verða í nótt og í fyrramálið en að bjart og fallegt verði yfir laugardaginn á vestanverðu landinu. 26. maí 2023 19:59