Án umbóta muni íbúar Líbanon þjást áfram Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2020 12:14 Emmanuel Macron og Michel Aoun, forsetar Frakklands og Líbanon. EPA/DALATI NOHRA
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að án umbóta muni íbúar Líbanon halda áfram að þjást. Landið gangi nú í gegnum pólitíska og efnahagslega krísu og þörf sé á skjótum viðbrögðum. Hann hét því einnig að standa þétt við bakið á Líbanon. Tala látinna í Beirút er komin í 145 eftir sprenginguna þar á þriðjudaginn. Þúsundir særðust í sprengingunni og allt að 300 þúsund manns eru án heimila. Tuga er enn saknað eftir sprenginguna og er fastlega búist við því að tala látinna muni hækka mikið, samkvæmt frétt Reuters. Macron lenti á flugvellinum í Beirút í morgun og hitti þar fyrir Michel Aoun, forseta Líbanon. Íbúar Líbanon hafa gengið í gegnum erfiða tíma að undanförnu þar sem ástand efnahags ríkisins er mjög slæmt, sem hefur leitt til umfangsmikilla mótmæla í borgum landsins og áköllum eftir endurbótum. Þá hafa sjúkrahús í Líbanon einnig þurft að glíma við töluverða útbreiðslu Covid-19. Líbanon var frönsk nýlenda fyrir seinni heimsstyrjöldina og síðan þá hafa tengsl ríkjanna verið mjög náin. Í frétt France24 segir að Frakkland sé vinsælt í Líbanon en meðlimir í ríkisstjórn Macron hafa gagnrýnt ráðandi öfl í Líbanon og hefur það fallið í kramið hjá mótmælendum þar í landi. Jean Yves Le Drian, einn æðsti erindreki Frakklands, heimsótti Líbanon í síðasta mánuði. Þá sagði hann ráðandi öfl þar ekki nógu dugleg í að verða við kröfum mótmælenda og í kjölfarið Nassif Hitti, utanríkisráðherra, af sér í mótmælaskyni við eigin ríkisstjórn. Forsetinn franski mun heimsækja vettvang sprengingarinnar í dag og svo seinna mun hann funda með stjórnmálamönnum og embættismönnum. Þá mun Macron halda blaðamannafund í kvöld. Watch: During French President Emmanuel Macron's visit to Lebanon after the massive explosion, he tells a woman not to worry after she urges Macron not to give money to the Lebanese government. #BeirutExplosion #Lebanon https://t.co/tiKzo9PxE2 pic.twitter.com/fPBIGWi1tP— Al Arabiya English (@AlArabiya_Eng) August 6, 2020 Talið er að sprengingin hafi orðið í vöruskemmu þar sem verið var að geyma flugelda og ammóníum nítrat, sem notað er til að framleiða áburð og sprengiefni. Alls voru um 2.750 tonn af þessu efni í vöruskemmunni en hafnarstarfsmenn höfðu reynt að losna við það um árabil en án árangurs. Margir telja sprenginguna vera afleiðingu vanrækslu og spillingar stjórnvalda.
Líbanon Frakkland Sprenging í Beirút Tengdar fréttir Innflutningur á efninu ammóníum nítrat í lágmarki hér á landi Innflutningur á efninu ammóníum nítrat er í lágmarki hér á landi að sögn slökkviliðsstjóra. Vel er fylgst með notkun og geymslu á efninu sem talið er að hafi valdið sprengingunni í Beirút. 5. ágúst 2020 20:00 Hefja neyðarsöfnun vegna sprenginganna í Beirút Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna hamfarasprenginganna í Beirút. Á annað hundruð manns fórust í sprengingunum að minnsta kosti og þúsundir slösuðust. 5. ágúst 2020 17:46 Farþegaskip á hliðinni og stærðarinnar gígur í höfninni Gervihnattarmyndir frá höfninni í Beirút sýnir að sprengingin í gær skildi eftir sig stærðarinnar gíg. 5. ágúst 2020 14:13 Yfir 100 látin og þjóðarsorg lýst yfir Þjóðarsorg ríkir nú í Líbanon eftir hina gríðarlega öflugu sprengingu sem varð í gær á hafnarsvæðinu í höfuðborginni Beirút. Tala látinna stendur nú í rúmlega hundrað manns, 5. ágúst 2020 07:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira
Innflutningur á efninu ammóníum nítrat í lágmarki hér á landi Innflutningur á efninu ammóníum nítrat er í lágmarki hér á landi að sögn slökkviliðsstjóra. Vel er fylgst með notkun og geymslu á efninu sem talið er að hafi valdið sprengingunni í Beirút. 5. ágúst 2020 20:00
Hefja neyðarsöfnun vegna sprenginganna í Beirút Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna hamfarasprenginganna í Beirút. Á annað hundruð manns fórust í sprengingunum að minnsta kosti og þúsundir slösuðust. 5. ágúst 2020 17:46
Farþegaskip á hliðinni og stærðarinnar gígur í höfninni Gervihnattarmyndir frá höfninni í Beirút sýnir að sprengingin í gær skildi eftir sig stærðarinnar gíg. 5. ágúst 2020 14:13
Yfir 100 látin og þjóðarsorg lýst yfir Þjóðarsorg ríkir nú í Líbanon eftir hina gríðarlega öflugu sprengingu sem varð í gær á hafnarsvæðinu í höfuðborginni Beirút. Tala látinna stendur nú í rúmlega hundrað manns, 5. ágúst 2020 07:12