Borgarbúum brugðið vegna breiðþotu í lágflugi Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. september 2020 13:08 Flugvélin á flugi yfir borginni. Aðsend
Íbúum víða á höfuðborgarsvæðinu varð bylt við þegar þotu var flogið yfir borgina nú um hádegisbil. Um er að ræða nýja flugvél á vegum íslenska flugfélagsins Air Atlanta, sem fékk leyfi til að fljúga henni lágt yfir höfuðstöðvar sínar í Kópavogi áður en henni var lent á Keflavíkurflugvelli. Vélin er af gerðinni Boeing 747-412F og kom til landsins frá Chicago í Bandaríkjunum. Fréttastofa hefur fengið fjölda ábendinga um flug vélarinnar í dag. Þá hafa til dæmis íbúar í Norðlingaholti velt vöngum yfir lágfluginu í hverfishóp á Facebook. Þeir lýsa því margir að allt hafi nötrað þegar flugvélin fór yfir – og þá hafi hún verið helst til nálægt jörðu. Töldu sumir að um nauðlendingu væri að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia var flugvélin þó talin yfir lágmarkshæð á flugi sínu. Leið þotunnar yfir borginni sést hér á skjáskoti af FlightRadar. Íbúar í Vesturbænum og miðbænum urðu sömuleiðis sumir hverjir varir við vélina þar sem hún flaug lágt yfir Reykjavíkurflugvelli án þess að lenda. Starfsmaður Háskóla Íslands fylgdist með út um skrifstofugluggann. „Ekkert smá flykki fór niður, hitti ekki á völlinn, og svo bara beint upp í loftið aftur,“ segir starfsmaðurinn í Vesturbæjargrúppunni á Facebook. Aðrir segjast búa í grennd við flugvöllinn en ekki hafa heyrt neitt. Fréttateymi Reykjavík Grapevine var að taka upp stuttan fréttaþátt fyrir YouTube-rás sína í Vesturbæ Reykjavíkur þegar flugvélin birtist óvænt. Myndband af vélinni á flugi yfir Vesturbænum má sjá hér fyrir neðan. Flugu hring til að gleðja starfsmenn Samkvæmt upplýsingum af FlightRadar kom vélin, sem er af gerðinni Boeing 747, frá Chicago í Bandaríkjunum og lenti á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir klukkan 13. Sigurður Magnús Sigurðsson framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs hjá Air Atlanta segir í samtali við Vísi að flugvélar félagsins komi afar sjaldan til landsins. Félagið reyni því iðulega að fá leyfi til þess að fljúga nýjum vélum yfir höfuðstöðvarnar til að gleðja starfsmenn þegar tækifæri gefst til. „Það kom gluggi í dag og við fengum leyfi. Flugmennirnir tóku því þennan hring, okkur öllum til mikillar ánægju,“ segir Sigurður. Síðast var flugvél Air Atlanta flogið í lágflugi yfir borgina af sama tilefni árið 2015. Það vakti einnig talsverða athygli, að sögn Sigurðar. Þá telur hann ekki ástæðu til að vara sérstaklega við flugferðum af þessu tagi, öll tilskilin og hefðbundin leyfi hafi fengist. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá Air Atlanta.
Fréttir af flugi Reykjavík Kópavogur Air Atlanta Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira