Erlent

Vitni greinir frá ráða­bruggi og lög­maður Trump fær við­vörun

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Teikning af Trump í dómsal í gær. Þess má geta að forsetinn fyrrverandi hefur verið afar óánægður með það hvernig hann hefur verið teiknaður.
Teikning af Trump í dómsal í gær. Þess má geta að forsetinn fyrrverandi hefur verið afar óánægður með það hvernig hann hefur verið teiknaður. AP/Elizabeth Williams

David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016.

Pecker greindi meðal annars frá fundi sem hann átti með Trump og þáverandi lögmanni hans Michael D. Cohen, þar sem mennirnir ræddu hvað hann gæti gert til að styðja við kosningabaráttu Trump. 

„Ég myndi verða augu þín og eyru,“ sagðist Pecker hafa sagt við forsetann fyrrverandi og þáverandi og núverandi forsetaframbjóðanda. Þá hafi hann útskýrt fyrir Trump og Cohen „fanga og drepa“ (e. catch and kill) aðferðafræði blaðsins, þar sem blaðið keypti réttinn að fréttum en birti þær aldrei.

Þetta er gula pressan sögð hafa stundað fyrir vildarvini.

Saksóknarar segja vitnisburð Pecker til marks um að ráðabruggi þríeykisins hafi ekki aðeins verið ætlað að vernda mannorð Trump heldur einnig kosningabaráttu hans. Segja þeir að tvær fréttir um Trump hafi verið þaggaðar niður í kjölfarið.

Þá hafi Cohen einnig mútað klámstjörnu fyrir að þegja um framhjáhald Trump, sem hann hefur þvertekið fyrir að hafi átt sér stað.

Saksóknarar biðluðu til dómarans í gær um að grípa til aðgerða vegna brota Trump á fyrirmælum hans um að tjá sig ekki um réttarhöldin í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þegar aðal lögmaður Trump, Todd Blanche, sagði að forsetinn væri að gera sitt besta til að fara að fyrirmælunum var augljóst að dómarinn átti afar erfitt með að trúa því. Sagði hann Blanche smám saman að glata öllum trúðverðugleika.

Ítarlega frétt um málið má finna hjá New York Times.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×