Tónlist

Tróna á toppnum með sitt fyrsta lag í tvo áratugi

Tinni Sveinsson skrifar
Kenny Dope Gonzalez og Louie Vega eru Masters At Work.
Kenny Dope Gonzalez og Louie Vega eru Masters At Work. Donna Ward/Getty Images

PartyZone gaf í dag út nýjan topplista þar sem fyrsta lag frá sveitinni Masters At Work í 20 ár trónir á toppnum.

Mánaðarlegir listar dansþáttarins eru vel þekktir en þar sem ekki kom út listi í mars er listinn núna í apríl enn innihaldsríkari en venjulega. 

„Við leitum til plötusnúðanna og biðjum þá um að gramsa í plötukössunum sínum og láta okkur hafa uppáhalds lögin sín. Einnig grömsum við sjálfir í helstu miðlum tónlistarpressunnar og skoðum allt það sem er að koma út,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn stjórnenda PartyZone.

Topp 30 listinn orðinn 30 ára

Topp 30 listi PartyZone var fyrst kynntur á útvarpsstöðinni Útrás 13. apríl árð 1991. Hann er því 30 ára gamall núna í vikunni og hefur verið vinsælasti liður þáttarins alla tíð síðan.

„Á listanum þessa vikuna er að finna funheita danstónlist úr ýmsum áttum, sumarlegt sundlagabakkahús yfir í þétta dansslagara fyrir mjög stór herbergi. Listamenn eins og Groove Armada, Booka Shade, íslenskt teknó frá OHM, írsku drottninguna Roisin Murphy og hina kanadísku Jayda G. 

Einnig má nefna líka endurkomur frá Basement Jaxx, Dimitri From Paris og húsgoðsagnirnar Masters At Work, sem tróna á toppnum með fyrsta lag sitt í tvo áratugi. Lagið heitir Mattell og er óður til samnefnds trommuheila. Þeir eru að endurútgefa allt sem kom út frá MAW Records á digital veitunum (m.a. Spotify) og má sömuleiðis búast með meira nýmeti frá þeim félögum,“ segir Helgi.

Hér fyrir neðan geta áhugasamir rýnt í listann í heild sinni.

Í þættinum er vikulegi liðurinn Múmía kvöldsins á sínum stað. Það er topplag PZ listans sem var kynntur á Rás 2 í apríl 2001 og er því 20 ára í dag. Lagið er stórdansslagarinnn Star 69 og má heyra það hér fyrir neðan.


PartyZone-Podcast er frumfluttur á Vísi snemma á föstudögum og er þátturinn síðar aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Mixcloud síðu þáttarins.


Tengdar fréttir

Mixuðu níu tíma dansveislu fyrir páskana

Páskaþáttur af tónlistarþættinum PartyZone 2021 fór í loftið á Vísi um helgina. Þema þáttarins að þessu sinni var árið 2000. „Árið 2000 var frábært danstónlistar ár og skemmtanalífið hér á landi var mjög viðburðaríkt. Það má segja að plötusnúðamenningin og danssenan hafi verið á algerum yfirsnúningi þetta herrans aldamótaár árið 2000,“ segir í lýsingu aðstandenda þáttanna.

Dans og báns úr MH á toppi PartyZone listans

Nýr PartyZone hlaðvarpsþáttur er kominn á „öldur netvakans“. Fyrsti PartyZone listi ársins, topp 30 fyrir febrúarmánuð, er kynntur og spilaður í þættinum. Árið fer af stað með látum samkvæmt þáttastjórnendum og má finna frábæra nýja tónlist úr heimi danstónlistarinnar í þættinum. Sem fyrr byggir listinn á vali plötusnúðanna og á „nokkuð ígrunduðu grúski þáttarstjórnenda.“

PartyZone birtir árslistann fyrir 2020

Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×