Tjón Hugins metið 540 milljónir í máli gegn ríkinu

Að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, telja dómskvaddir matsmenn …
Að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, telja dómskvaddir matsmenn að brestir í úthlutun makrílkvóta hafi valdið dótturfélaginu tjóni sem nemur 540 milljónum króna. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson.

Fyrirtaka var í vikunni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Hugins VE-55 gegn ríkinu vegna tjóns sem útgerðin varð fyrir við útgáfu makrílkvóta.

Lögmaður Hugins lagði fram matsgerð vegna tjónsins og nemur tjón útgerðarinnar um 540 milljónum króna, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, en fyrirtækið eignaðist öll hlutabréf í Hugin ehf. á síðasta ári. Að fyrirtöku lokinni var málinu frestað til 10. febrúar.

Hæstiréttur felldi tvo dóma í desember 2018 um að ekki hefði verið byggt á aflareynslu við útgáfu makrílkvóta á grundvelli reglugerða 2011 til 2014 eins og skylt hefði verið og sama fyrirkomulag hefði verið viðhaft fram til 2018.

Ríkið væri skaðabótaskylt í málinu þar sem ranglega hefði verið staðið að úthlutun kvótans og minna komið í hlut fyrirtækjanna en þeim hefði borið samkvæmt lögum.

Sjö útgerðarfélög stefndu ríkinu til greiðslu skaðabóta alls að upphæð um 10,2 milljarðar, en fimm félaganna féllu frá málarekstri.

Vinnslustöðin og Huginn héldu málinu áfram og var upphafleg krafa Vinnslustöðvarinnar upp á 982 milljónir króna og Hugins 839 milljónir. Að sögn Sigurgeirs Brynjars sættust aðilar á dómkvadda, óvilhalla matsmenn til að meta fjárhagslegt tjón.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

Huginn VE að veiðum.
Huginn VE að veiðum. Ljósmynd/Vinnslustöðin
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »