Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2021 13:05 Magdalena Andersson var nýverið kjörin nýr formaður sænskra Jafnaðarmanna. Hún tók við stöðunni af Stefan Löfven. AP Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins.
Þingmenn munu greiða atkvæði um tillöguna á miðvikudagismorgun og þarf þar meirihluti að umbera Andersson, það er ekki greiða atkvæði gegn tillögunni, til að hún taki við embættinu af Stefan Löfven og verði þar með 34. forsætisráðherra Svíþjóðar og fyrsta konan til að gegna embættinu í landinu. Þingforsetinn Andreas Norlén tilkynnti um þetta á fréttamannafundi í hádeginu, en hann hafði veitt Andersson frest til dagsins í dag til að kanna möguleika á myndun nýrrar stjórnar. Andersson, sem hefur gegnt embætti fjármálaráðherra Svíþjóðar frá árinu 2014, greindi Norlén frá því í morgun að ekki hafi náðst samkomulag við formann Vinstriflokksins, en að samtölin hafi verið í „góðum anda“. Hafa flokkarnir helst deilt um lífeyrisgreiðslur sem Vinstriflokkurinn telur vera of lágar. Andersson hefur þó ekki farið fram á lengri frest til viðræðna og því hafi Norlén ákveðið að tilnefna Andersson núna. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í september 2022 og telur Andersson rétt að halda viðræðum við Vinstriflokkinn áfram fram að atkvæðagreiðslunni á þinginu á miðvikudaginn. Ríkisstjórn Jafnaðarmannaflokksins og Græningja hefur síðan í sumar verið varin vantrausti af Miðflokknum og Vinstriflokknum. Hins vegar þarf ný atkvæðagreiðsla um forsætisráðherra að fara fram þar sem Löfven sagði af sér á dögunum. Þingforseti hefur fjórar tilraunir til að tilnefna forsætisráðherra, en fari svo í atkvæðagreiðslum á þinginu að meirihluti umberi ekki þann sem tilnefndur er þarf að boða til aukakosninga. Þingkosningar munu fara fram í Svíþjóð í september á næsta ári, óháð því hvort komi til aukakosninga.
Svíþjóð Tengdar fréttir Andersson tekin við sem formaður af Löfven Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar, var í gær kjörin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins á landsþingi flokksins í Gautaborg. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven sem tók á sínum tíma við stöðunni af Håkan Juholt árið 2012. 5. nóvember 2021 07:48 Stefan Löfven búinn að segja af sér Stefan Löfven hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar en hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2014. Löfven gekk á fund Andreas Norlén þingforseta klukkan 11:30 að íslenskum tíma þar sem hann tilkynnti um afsögnina. 10. nóvember 2021 11:58 „Nískasti fjármálaráðherra ESB“ líklegastur til að taka við Stefan Löfven greindi frá því um síðustu helgi hann ætli sér að láta af störfum sem forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. Hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Jafnaðarmannaflokknum á landsþingi í nóvember. Skiljanlega eru farnar af stað miklar umræður um hver muni taka við formennsku í flokknum og yrði þá í kjörstöðu til að taka einnig við embætti forsætisráðherra landsins. 24. ágúst 2021 08:42 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira
Andersson tekin við sem formaður af Löfven Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar, var í gær kjörin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins á landsþingi flokksins í Gautaborg. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven sem tók á sínum tíma við stöðunni af Håkan Juholt árið 2012. 5. nóvember 2021 07:48
Stefan Löfven búinn að segja af sér Stefan Löfven hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar en hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2014. Löfven gekk á fund Andreas Norlén þingforseta klukkan 11:30 að íslenskum tíma þar sem hann tilkynnti um afsögnina. 10. nóvember 2021 11:58
„Nískasti fjármálaráðherra ESB“ líklegastur til að taka við Stefan Löfven greindi frá því um síðustu helgi hann ætli sér að láta af störfum sem forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. Hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Jafnaðarmannaflokknum á landsþingi í nóvember. Skiljanlega eru farnar af stað miklar umræður um hver muni taka við formennsku í flokknum og yrði þá í kjörstöðu til að taka einnig við embætti forsætisráðherra landsins. 24. ágúst 2021 08:42