Segir kosningarnar aðeins skrípaleik kínverskra stjórnvalda Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 4. desember 2021 08:19 Law flúði Hong Kong í fyrra eftir umfangsmiklar fjöldahantökur. Getty/May James Lýðræðisaðgerðasinninn Nathan Law hefur hvatt fólk til að taka ekki þátt í kosningunum í Hong Kong sem eiga að fara fram 19. desember næstkomandi. Fólk eigi að sleppa því að kjósa og þannig sýna stjórnvöldum að kosningarnar hafi ekkert lögmæti.
Undanfarin tvö ár hefur Hong Kong tekið stakkaskiptum. Öryggislög svokölluð tóku gildi en þau voru innleidd fyrir tilstilli kínverskra stjórnvalda. Héraðið, sem eitt sinn var bresk nýlenda en hefur undanfarin tuttugu ár verið með sjálfsstjórn, hefur með þessi misst meiri og meiri völd til stjórnvalda í Peking. Þá voru drastískar breytingar á kosningalögum Hong Kong kynntar í mars af stjórnvöldum í Peking. Breytingarnar felast einna helst í því að færri fulltrúar á þingi Hong Kong eru kjörnir af almenningi og þeim fjölgar sem skipaðir eru af stjórnvöldum í Peking. Þá eru frambjóðendur í kosningunum líklega ekki þeir vinsælustu hjá lýðræðissinnum en allir frambjóðendur hafa verið samþykktir af Peking. „Hundsið þær bara,“ segir lýðræðissinninn Law í samtali við Reuters. Law er búsettur í Lundúnum í Bretlandi en hann flúði heimahéraðið í kjölfar fjöldahandtaka í fyrra og fékk hæli í Bretlandi. „Við skulum ekki gefa þessum kosningum neitt lögmæti eða vægi, við ættum ekki einu sinni að þykjast að þetta séu kosningar - þetta er bara val Peking.“ Enginn hefur enn svarað Law en Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, sagði í september að breytingarnar á kosningalögunum væru til að tryggja að stjórnendur Hong Kong „væru ættjarðarvinir.“ Horfa má á hluta úr viðtalinu við Law hér.
Hong Kong Kína Tengdar fréttir Amnesty yfirgefur Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga Mannréttindasamtökin Amnesty International tilkynntu það í dag að þau muni loka skrifstofum sínum í Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga, sem yfirvöld í Kína komu á í sjálfsstjórnarhéraðinu. Lögin hafa gert mannréttindasamtökum erfitt fyrir að starfa á eigin forsendum, án þess að sæta viðurlögum yfirvalda. 25. október 2021 13:13 Skipuleggjendur minningarathafnar ákærðir fyrir að ógna þjóðaröryggi Skipuleggjendur minningarathafnar um ódæðisverkin sem framin voru á Torgi hins himneska friðar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi Hong Kong. 10. september 2021 16:03 Meðlimir stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong handteknir Lögregla í Hong Kong handtók í morgun fjóra meðlimi stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong. 18. ágúst 2021 07:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Amnesty yfirgefur Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga Mannréttindasamtökin Amnesty International tilkynntu það í dag að þau muni loka skrifstofum sínum í Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga, sem yfirvöld í Kína komu á í sjálfsstjórnarhéraðinu. Lögin hafa gert mannréttindasamtökum erfitt fyrir að starfa á eigin forsendum, án þess að sæta viðurlögum yfirvalda. 25. október 2021 13:13
Skipuleggjendur minningarathafnar ákærðir fyrir að ógna þjóðaröryggi Skipuleggjendur minningarathafnar um ódæðisverkin sem framin voru á Torgi hins himneska friðar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi Hong Kong. 10. september 2021 16:03
Meðlimir stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong handteknir Lögregla í Hong Kong handtók í morgun fjóra meðlimi stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong. 18. ágúst 2021 07:34