Einar ráðinn framkvæmdastjóri Hábrúnar

Einar Guðmundsson er nýr framkvæmdastjóri Hábrúnar.
Einar Guðmundsson er nýr framkvæmdastjóri Hábrúnar. Ljósmynd/Aðsend

Einar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Hábrúnar hf. sem starfrækir regnbogaeldi í Skutulsfirði og fiskvinnslu í Hnífsdal. Fyrirtækið er eitt elsta starfandi sjókvíaeldisfyrirtæki á Íslandi með nærri tveggja áratuga reynslu af eldi við Ísafjarðardjúp. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Einar er fertugur að aldri, fæddur og uppalinn í Bolungarvík og útskrifaðist nýlega sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur starfað sem skipstjóri síðustu tíu ár ásamt því að reka útgerð með fjölskyldu sinni.

Þá situr Einar í stjórn Fiskmarkaðs Vestjarða og var formaður hafnarstjórnar Bolungarvíkur í fjögur ár. Hann hefur víðtæka þekkingu á rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og passar einkar vel inn í starfsmannahóp Hábrúnar sem sér fram á meiri vöxt fyrirtækisins innan fárra ára.

Aðrir lykilstarfsmenn Hábrúnar eru Davíð Kjartansson rekstrarstjóri, Jóhanna Ósk Halldórsdóttir sölustjóri, og Ásgeir Sólbergsson skrifstofustjóri.

Hábrún er með leyfi fyrir 700 tonna eldi af regnbogasilungi en hefur jafnframt sótt um leyfi Skipulagsstofnunar til verulegrar stækkunar til að styrkja stoðir fyrirtækisins enn frekar. Hluthafahópur Hábrúnar samanstendur einkum af heimamönnum og öðrum fjárfestum sem hafa sterk tengsl vestur á firði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.5.24 404,69 kr/kg
Þorskur, slægður 2.5.24 375,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.5.24 188,92 kr/kg
Ýsa, slægð 2.5.24 106,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.5.24 119,04 kr/kg
Ufsi, slægður 2.5.24 151,47 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 2.5.24 133,25 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 6,94 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.5.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 611 kg
Steinbítur 86 kg
Samtals 697 kg
3.5.24 Már BA 406 Sjóstöng
Þorskur 243 kg
Samtals 243 kg
3.5.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grásleppa 552 kg
Samtals 552 kg
3.5.24 Stuttnefja BA 408 Sjóstöng
Þorskur 217 kg
Samtals 217 kg
3.5.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 218 kg
Samtals 218 kg

Skoða allar landanir »